Lífið

Manúela og Snorri Björns ætla á stefnumót

Stefán Árni Pálsson skrifar
Snorri ætlar sér að Snappa á stefnumótinu.
Snorri ætlar sér að Snappa á stefnumótinu. vísir
Athafnakonan Manúela Ósk Harðardóttir og Snapchat-stjarnan Snorri Björnsson eru á leiðinni á stefnumót.

Samskipti þeirra hófust á Twitter þegar Manúela tísti eftirfarandi: „Hver er Snorri Björns, af hverju er ég með hann á Snap og ætli hann vilji byrja með mér? #crushin.“

Snorri var ekki lengi að svara og bauð henni strax á stefnumót og eru þau á leiðinni út að borða. Hann var gestur í þættinum Brennslan á FM957 í morgun og staðfesti þar að hann væri á leiðinni á date með Manúelu.

Hann ræddi einnig um Snapchat og samfélagsmiðla og hvernig maður slær í gegn á þeim miðlum. Snorri er með Snapchat-reikninginn snorribjorns. Manúela er einnig gríðarlega vinsæl á Snapchat en hennar notendanafn er Manuelaosk.

Hér að neðan má hlusta á virkilega skemmtilegt spjall við Snorra frá því úr þættinum í morgun. 

Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Snorra frá því í morgun.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×