Lífið

Manúela fékk sér stórglæsileg húðflúr um helgina: "Guy var mjúkhentur og góður við mig“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Manúela Ósk er gríðarlega vinsæl á samfélagsmiðlunum.
Manúela Ósk er gríðarlega vinsæl á samfélagsmiðlunum. vísir/manúela
„Mér fannst þetta ekkert það vont,“ segir Manúela Ósk Harðardóttir, hönnunarnemi og Snapchat-stjarna, um ný húðflúr sem hún fékk sér um helgina.

Guy, gestaflúrari á Reykjavik Ink gerði þau bæði en um er að ræða þrjú mismunandi húðflúr. Eitt þeirra er staðsett á síðunni og þar stendur; „you do you, girl“ og síðan er hún komin með orðin „own“ og „it“ á sitthvora kálfana.

„Guy var mjúkhentur og góður við mig en þetta var samt auðvitað ekkert notalegt, meira bara smá óþægilegt en vont.“

Manúela er ein allra stærsta Snapchat-stjarnan á Íslandi og fylgja henni mörg þúsund manns. Notenda nafn hennar er Manuelaosk. Einnig hefur hún um 23.000 fylgjendur á Instagram.


Tengdar fréttir

Sextán þúsund manns fylgdust með Manuelu í Playboyhöllinni

Manuela Ósk Harðardóttir brá sér vestur um haf og skemmti sér með stórstjörnunum í sérlegu partíi sem Richard Branson stóð fyrir í tengslum við Grammy-verðlaunahátíðina sem fram fór í Los Ang­­eles á mánudagskvöld.

Manúela: „Ég sjálf er ekki með átröskun“

„Ég sjálf er ekki með átröskun, og mér finnst mjög gott að Lína Birgitta hafi opnað þessa umræðu,“ segir Manúela Ósk Harðardóttir, fyrrum ungfrú Ísland, á Snapchat






Fleiri fréttir

Sjá meira


×