Bíó og sjónvarp

Manstu eftir Batman Forever? Það eru tuttugu ár síðan hún kom út

Guðrún Ansnes skrifar
Leðurblökumaðurinn og Robin. Val Kilmer og Chris O´Donnel í hlutverkum sínum.
Leðurblökumaðurinn og Robin. Val Kilmer og Chris O´Donnel í hlutverkum sínum.
Í ár eru liðin tuttugu ár frá því að kvikmyndin Batman Forever leit dagsins ljós.

Leikstjóri myndarinnar er Joel Schumacher, en hann leikstýrði svo Batman & Robin sem kom út árið 1997, eða tveimur árum á eftir Batman Forever. Val Kilmer tók að sér hlutverk Leðurblökumannsins, en hann fetaði þar í fótspor Lewis G. Wilson, Roberts Lowrey, Adams West og Michaels Keaton.

Þá leika þau Nichole Kidman, Jim Carrey, Drew Barrimore, Tommy Lee Jones, Chris O'Donnell og Michael Gough stórar rullur í myndinni.

Í tilefni tvítugsafmælisins er kjörið að grípa í nokkra mola um myndina og það sem gerðist að tjaldabaki.

Batman, já takk!

Þegar Joel Schumacher var valinn til að leikstýra myndinni vildi Michael Keaton ekki halda áfram sem Batman. Hann valdi því Val Kilmer, sem greip gæsina strax og samþykkti að leika í myndinni áður en hann las handritið.

Joel Schumacher leikstjóri
Stórt barn á setti

Schumacher og Kilmer áttu ekki skap saman og varð stundum heitt í kolunum hjá þeim.

Schumacher sagði leikarann barnalegan og ómögulegan. Sagði hann Kilmer hafa farið í tveggja vikna fýlu eftir að Schumacher bað hann um að haga sér almennilega á settinu.

Ferill Kilmer fór skáhallt niður á við eftir frammistöðu hans í hlutverki Batmans, og segja sumir að hann hafi ekkert jafnað sig aftur.

Skelfilegur búningur 

Kilmer kvartaði mikið undan búningn­um og sagði nær ómögulegt að heyra nokkuð í honum og alveg útilokað að bregða sér á klósettið. 

Hann sagði jafnframt að það hefði farið í skapið á sér. Kannski það útskýri stemninguna á settinu samkvæmt Schumacher.

Val Kilmer.
Fórnarkostnaður Carrey

Jim Carrey tók mikinn þátt í að skapa karakterinn sinn, The Riddler, sem iðulega sveiflaði staf. 

Til þess að ná þessum sveiflum þurfti Carrey að æfa sig, en það gerði hann á kostnað tólf stafa, og þónokkurra innanstokksmuna í hjólhýsinu sem hann hélt til í á meðan á tökum stóð.

Krossbrjálaður

Will Shortz, krossgátusérfræðingur hjá New York Times fékk greiddar litla tvö þúsund dollara fyrir að semja fjórar gátur fyrir The Riddler. 

Hann sagði svo seinna meir frá því að hann hefði verið býsna svekktur yfir hve snöggur Batman var að ráða þær.

Nicole Kidman í hlutverki sínu.
Uppfærður doktor

Nicole Kidman fór með hlutverk hinnar töfrandi og eiturkláru Dr. Chase Meridian. 

Upphaflega átti Rene Russo að fara með hlutverkið. Það var reyndar á frumstigi myndarinnar, þegar Michael Keaton ætlaði að leika Batman í þriðja skiptið. Hann hætti síðan við þar sem honum leist ekki á handritið og leikstjórann.

Þegar Val Kilmer var loks ráðinn í hlutverk Batman þótti Russo of gömul fyrir rómantíkina þeirra á milli og Kidman var ráðin í hlutverk Dr. Meridian.

Eldsprækir erkifjendur.
Helvítið hann Carrey

Tommy Lee Jones samþykkti að leika skúrkinn Two Face, þar sem sonur hans, þá ellefu ára gamall, hafði sérstakt dálæti á þeim karakter.

Hann hefur líklega bölvað honum á einhvern tímann, því Two Face og The Riddler sem Jim Carrey lék, voru mikið samtvinnaðir í myndinni.

Carrey sagði síðar frá því að Jones hefði hatað sig innilega og verið duglegur við að láta hann vita af því á meðan á tökum myndarinnar stóð.

U2 fóru á toppinn.
Alvöru rokk 

Írsku ofurtöffararnir í U2 voru beðnir um að birtast í myndinni þar sem þeir myndu flytja lag í einu atriðinu.

Þeir bættu um betur og sömdu titillag myndarinnar, Hold Me, Thrill Me, Kiss Me, Kill Me. Náði lagið gríðarlegum vinsældum og nældi sér til að mynda í fyrsta sæti Billboard Album Rock Tracks.

Bono, söngvari sveitarinnar, lýsti laginu á þann hátt að það endurspeglaði hvað virkilega þýddi að vera í rokkhljómsveit.

Fyrir áhugasama má sjá hér samantekt af bestu atriðum myndarinnar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×