Mansalsmálið lamaði fjárhag heyrnarlausra Snærós Sindradóttir skrifar 25. febrúar 2017 07:00 Félag heyrnarlausra seldi 6000 happdrættismiða eftir að málið komst upp en Daði segir þá þurfa að vera 11 til 12 þúsund talsins. vísir/vilhelm
Lögreglurannsókn um mögulegt mansal innan Félags heyrnarlausra olli félaginu verulegum fjárhagsskaða. Í grein Daða Hreinssonar, framkvæmdastjóra félagsins, segir að helmingi færri happdrættismiðar hafi verið seldir síðasta haust en þurfi til að félagið geti veitt góða þjónustu. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er rannsókn málsins ekki lokið. Í maí greindi Fréttablaðið frá því að lögreglan hefði til rannsóknar vinnumansalsmál innan Félags heyrnarlausra. Rússnesk kona, sem komið hefði hingað til starfa til að selja happdrættismiða, dveldi í Kvennaathvarfinu á meðan málið væri til rannsóknar.Daði Hreinsson, framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra. Fréttablaðið/GVAHeimildir Fréttablaðsins hermdu að konan hefði þurft að borga eittþúsund dollara við komuna til landsins án þess að fá atvinnuleyfi. Á tveggja mánaða tímabili hefði hún fengið um 20 þúsund krónur í laun og var rukkuð um skutl á vegum vinnuveitanda síns í þau hverfi þar sem henni var gert að vinna, allt að 3000 krónur í hvert skipti. Hún hefði komið hingað tvisvar með sama hætti. Rannsókn lögreglu beindist meðal annars að því hvort fleiri þolendur væru til staðar í málinu. Markaðs- og fjáröflunarstjóri félagsins var tengiliður konunnar við félagið og hýsti hana á meðan á sölunni stóð. Manninum var sagt upp eftir að málið komst í hámæli. Þá kom í ljós að maðurinn hefði farið fram hjá reglum félagsins um að sölumenn fengju 25 prósent söluþóknun á hvern seldan miða, en vegna þess að konan fékk gistingu hjá manninum, borgaði hann henni 15 prósent söluþóknun. Í pistli framkvæmdastjórans í Döffblaðinu, sem kom út í síðustu viku, segir að vegna málsins hafi síðasta ár verið afar erfitt fyrir starfsfólk Félags heyrnarlausra og stjórn þess. „Eins og flest ykkar vitið fékk Félag heyrnarlausra á sig síðasta vor óréttmæta ásökun og mannorðshnekki um mansal, og það í fréttum á aðalfundardegi Félags heyrnarlausra.“ Félagið ákvað að auglýsa einungis eftir íslenskum sölumönnum fyrir næstu happdrættissölu, sem fram fór síðasta haust. „Niðurstaðan var algjört hrun á happdrættissölunni sem búist var við enda flestir heyrnarlausra í vinnu annarsstaðar og lítill áhugi döff Íslendinga að selja happdrættismiða.“ Félagið hefur nú brugðið á það ráð að fá til sín fimm sölumenn frá Tékklandi. „Er því ljóst að við förum aftur í sama far og áður sem bar auðvitað bestan árangur sölunnar að fá til aðstoðar við okkur erlenda duglega sölumenn sem selja hér alla daga, hvernig sem viðrar,“ segir í pistli framkvæmdastjórans. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Getur ekki lagt fram trygginguna og biðlar til dómstóla um miskunn Erlent „Við verðum að bregðast við þegar glugginn er opinn“ Innlent „Þetta er að verða komið gott“ Innlent „Mannkynið mun ekki lifa framhald af Oppenheimer“ Erlent Stöðug virkni í nótt Innlent Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum Innlent Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur Innlent Ísland meðal örfárra ríkja sem standast viðmið WHO um loftgæði Erlent Jakob Reynir Aftur reynir aftur Innlent Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Innlent Fleiri fréttir Opna Grindavík aftur Hjónum fjölgar hjá umboðsmanni skuldara Bein útsending: Málþing um framtíð rammaáætlunar Stöðug virkni í nótt „Við verðum að bregðast við þegar glugginn er opinn“ „Þetta er að verða komið gott“ Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Lýsir yfir vonbrigðum og krefst frestunar aðalfundar Árekstur við Kaplakrika Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur Jakob Reynir Aftur reynir aftur Bankastjóri segir það hennar hlutverk að reka Landsbankann Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum Tveggja ára fangelsi fyrir hnífaárás vegna lélegs kókaíns Hvorki sakborningur né fórnarlamb kannast við skotárásina Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stefán Ingimar neitar að koma til landsins Virkni gossins enn stöðug og hætta enn talin mikil Tekur ekki þátt í að selja hlut í Landsbankanum Endurskoða aðgangstakmarkanir á morgun Meðmælabréf kennaranna ekki nóg fyrir skólastjórann Lítil stemning fyrir rafrænni undirritun Ríkið reynt að hafa þinglýstar jarðir af bændum með valdi Fær engar slysabætur eftir að hafa ekið réttindalaus og „frosið“ á fjórhjólinu Íslendingurinn var handtekinn í Baltimore Foreldrar megi ekki vera vondir við sjálfa sig eftir stórt áfall Hraunið á um 330 metra í Suðurstrandarveg Svartsengi rýmt vegna gasmengunar Barmur hrauntjarnar við það að bresta og mikil mengun í Svartsengi Haldlögðu mikið magn skotvopna á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira