Formúla 1

Manor með Mercedes vélar

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Will Stevens á Manor bílnum á götum Singapúr.
Will Stevens á Manor bílnum á götum Singapúr. Vísir/Getty
Manor Marussia liðið í Formúlu 1 hefur náð samningum við Mercedes um að skaffa liðinu vélar á komandi tímabilum.

Manor notast núna við vélar frá Ferrari. Vélar sem eru 2014 árgerð. Samningar voru gerðir við upprisu Manor úr ösku Marussia. Nú þegar liðið virðist vera að ná fótunum vill liðið sækja sér samkeppnishæfari vélar.

„Ég er ánægður að tilkynna að Mercedes-Benz mun knýja bílana okkar á næsta ári og inn í framtíðina. Það komu margir til greina en að endingu er máttur Mercedes vélanna of heillandi,“ sagði John Booth, keppnisstjóri Manor.

„Hreint út sagt hefðum við ekki komið aftur til keppni án þess að njóta stuðnings Ferrari, á sama tíma og þeir voru að þróa eigin bíl og vél fyrir 2015,“ bætti Booth við.

Manor mun áfram nota fjöðrun og gírkassa frá Williams liðinu.

„Við erum spennt að komast að því hverju þessi samsetning skilar okkur í framtíðinni,“ sagði Booth að lokum.

Samningurinn hefur verið í vinnslu í nokkrar vikur, óvissan í kringum Lotus liðið tafði viðræður aðeins. Nú þegar Renault hefur skrifað undir viljayfirlýsingu þess efnis að taka yfir Lotus, losnaði um Mercedes vél þeirra.

Líklega verður einhver aukning í styrktaraðilum fyrir Manor í kjölfar samningsins. Mercedes hefur smíðað gríðarlega góðar vélar, það gæti svo gert Manor kleift að þróa bíla sína enn frekar. Þá gæti þeir orðið enn samkeppnishæfari og náð í enn stærri styrktaraðila og þá er boltinn byrjaður að rúlla og enginn veit hvar hann stoppar.


Tengdar fréttir

Marussia bjargað á elleftu stundu?

Tekist hefur að blása lífi í vonarglæður yfirmanna Marussia liðsins um að það takist að bjarga liðini. Hætt hefur verið við loka uppboð á eignum liðsins.

Lok, lok og læs hjá Lotus

Lotus liðið kom að lokuðum dyrum á gestamóttöku sinni við Suzuka brautina í Japan. Búnaður liðsins kom einnig á eftir búnaði annarra liða. Japanski kappaksturinn fer fram um helgina.

Manor með til Melbourne

Manor liðið hefur staðfest að 2015 bíll liðsins sé reiðubúinn og mæti í fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu eftir 10 daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×