Innlent

Mannslát rannsakað sem morð

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Alvarleg árás á Akranesi er nú rannsökuð sem morð. Karlmaður á sextugsaldri var fluttur meðvitundarlaus þann 2.október á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi þar sem hann lést í gær.
Alvarleg árás á Akranesi er nú rannsökuð sem morð. Karlmaður á sextugsaldri var fluttur meðvitundarlaus þann 2.október á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi þar sem hann lést í gær. vísir/gva
Lögregla var kölluð til föstudaginn 2. október og þrjátíu og sex ára gamall karlmaður á vettvangi var handtekinn grunaður um að hafa þrengt að öndunarvegi sextugs karlmanns þar til hann missti meðvitund. Maðurinn komst aldrei til meðvitundar og lést á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í gær.

Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.

Hinn grunaði situr í gæsluvarðhaldi í Héraðsdómi Vesturlands til 14. október og lögreglan á Vesturlandi rannsakar málið með stuðningi tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Nágrannar hins grunaða, sem bjó á Vitateig, segja hann hafa valdið miklu ónæði og að greinilegt hafi verið að eitthvað væri í uppsiglingu daginn fyrir ódæðið. Þá hafi hafist veisluhöld í húsinu. Maðurinn átti það til að predika guðsorð með eigin hætti þegar sá gállinn var á honum, í óþökk nágranna sinna, og því er hann nefndur „predikarinn“ í götunni.

Brottfluttur nágranni sem bjó í húsinu með honum um tíma segir að sér hafi þótt samvistin við hann erfið. Hann hafi brotið rúðu í húsinu, verið ógnandi í hegðun og honum hafi staðið stuggur af honum. Loks hafi hann flutt til höfuðborgarinnar, feginn því að vera laus úr húsinu.

DV greindi frá því í gær að samkvæmt heimildum blaðsins hefði hinn grunaði kyrkt hinn látna með skóreim. Þá hafi hann farið út í garð og tekið gröf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×