Erlent

Mannskætt flugslys í höfuðborg Taívan

Atli Ísleifsson skrifar
Fimmtíu og átta voru um borð í vélinni sem er af gerðinni ATR-72.
Fimmtíu og átta voru um borð í vélinni sem er af gerðinni ATR-72. vísir/afp
Að minnsta kosti 31 eru látnir og óttast er um átján til viðbótar eftir að farþegaflugvél TransAsia Airways hrapaði í á í Taípei, höfuðborg Taívans, í nótt.

Það sem við vitum:

  • 31 er látinn og fimmtán slasaðir. Samkvæmt nýjustu fréttum er tólf enn saknað.
  • Myndir náðust af vélinni rétt áður en hún skall með vænginn á brú og hafnaði í Keelung ánni.
  • 58 voru um borð í vélinni sem er af gerðinni ATR-72 - 51 fullorðinn, tvö börn og fimm áhafnarmeðlimir.
  • Vélin var nýtekin á loft frá Songshan flugvelli í Taípei og var á leið til Kinmen-eyja, eyjaklasa undan strönd kínversku borgarinnar Xiamen í suðausturhluta landsins. Vélin var búin að vera fjórar mínútur á lofti áður en hún hrapaði.
  • Flugturn missti sambandi við vélina klukkan 10:55 á staðartíma eða klukkan 2:55 í nótt.
  • Vélin náði mest 1.350 feta hæð (411 metrar) áður en hún missti hæð.
  • Að sögn News Asia eru flugritar vélarinnar fundnir.
  • Að sögn taívanskra yfirvalda voru 31 farþegi kínverskir ferðamenn, ýmist frá Taívan eða meginlandi Kína.
  • Flugnúmer vélarinnar var GE235. Flugvélin var einungis níu mánaða gömul og síðast skoðuð 26. janúar.
  • Líklegt er talið að vélarbilun hafi orsakað slysið.
  • Kvöld er nú skollið á í Taíwan en björgunaraðgerðir standa enn.
Á myndböndum frá vettvangi má sjá hvernig flugmaður vélarinnar nær að sveigja frá brúni og brotlenda út í ána. Á myndbandinu sem fylgir fréttinni sést hvernig vélin rekst á leigubíl rétt áður en hún fer út í ánna. Enginn slasaðist í bílnum en eins og sjá má, mátti ekki miklu muna.

„Mayday, mayday, vélin brennur“ eiga að hafa veirð síðustu orð flugstjórans til flugumferðarstjóra áður en hann reyndi að snúa vélinni við til að lenda aftur á flugbrautinni.

Á sjónvarpsmyndum má sjá hvernig björgunarsveitir á bátum heyja örvæntingarfulla baráttu að ná farþegum út úr braki vélarinnar. Reyna þeir að ná farþegunum út með reipum. Einnig má sjá hvernig nokkrir farþeganna synda í land.

„Þetta lítur ekki vel út. Þeir farþegar sem sátu fremst í vélinni hafa líklegast farist,“ segir Wu Jun-Hung, talsmaður slökkviliðs og björgaraðgerða í Taípei, í samtali við AP.

Á myndunum má einnig sjá að vélin var mjög nærri því að skella á nokkur íbúðahús, en svo virðist sem hafi tekist að koma í veg fyrir enn frekari slys með því að stýra vélinni ofan í ána.

vísir/afp
Staðreyndir um TransAsia Airways

  • Flugfélagið var stofnað árið 1951 og var fyrsta einkarekna flugfélagið sem var stofnað í Taívan í kjölfar borgarastyrjaldarinnar við kínverska kommúnistaflokkinn.
  • Félagið býr yfir flugvélaflota með ellefu ATR-72 vélum og ellefu Airbus A320, A321 og A330.
  • Í desember 2002 hrapaði fraktflugvél TransAsia á leið til Macao. Slysið var rakið til ísingar og fórust báðir flugmenn vélarinnar sem var af gerðinni ATR-72.
  • Í mars 2003 slösuðust tveir þegar Airbus A321 vél TransAsia rakst á vörubíl á Tainan-flugvelli.
  • Í júlí 2014 létust 48 af 58 farþegum ATR 72-600 vélar TransAsia sem brotlenti í Taívan.
  • Heimildir: NRK, DPA, Airfleets.net
vísir/afp
Staðreyndir um flugvélagerðina ATR 72-600.

  • Síðustu tuttugu árin hafa ólíkar gerðir af ATR 72 átt þátt í fjórtán flugslysum hið minnsta. Nærri 300 manns hafa samtals látist í þeim slysum.
  • 31. október 1994 hrapaði 72-212 vél American Eagle í Indiana-ríki vegna íss. Allir 68 sem voru um borð fórust.
  • 16. október 2013 hrapaði 72-600 Lao Airlines í Mekong-fljót skömmu fyrir áætlaða lendingu. Allir 49 um borð létust.
  • 23. júlí 2014 hrapaði önnur ATR 72-600 vél TransAsia Airways á Taívan. 48 af 58 farþegum vélarinnar fórust.
  • ATR er flugvélagerð unnin af Airbus og hinu ítalska Alenia Aermacchi. Vélarnar eru notaðar í innanlandsflugi fjölmargra flugfélaga víðs vegar um heim. Flugher Tyrklands og Pakistans notast einnig við vélina.
  • Vélin er 27,2 metrar á lengd og með 27,1 metra vænghaf.
  • Heimildir: NRK, DPA, Reuters og NTB.
vísir/afp
Chen Xinde, forstjóri TransAsia, baðst á fréttamannafundi afsökunar á slysinu og sagði að starfsmenn flugfélagsins myndu rannsaka allar ATR-72 vélar félagsins. Ekki er langt síðan vél flugfélagsins af sömu gerð hrapaði í Taívan þar sem 48 manns fórust.

Forstjórinn sagði félagið ætla að bíða leiðbeininga og tilmæla frá Flugmálaeftirlitinu áður en ákveðið verður að leggja öllum vélum flugfélagisins.

Vefsíðan flightglobal.com greinir frá því að á sama fréttamannafundi var greint frá því að bilun hafi nýlega komið upp í vinstri hreyfli vélarinnar, sem hafi verið lagaður í Macau.

Flugmaður GE235, Liaojian Zong, var með nærri 5.000 flugtíma reynslu. Auk Zong voru tveir reyndir flugmenn í flugstjórnarklefa vélarinnar.

Dagblaðið Apple Daily hefur rætt við lækninn sem hlúði að manninum sem ók leigubílnum sem flugvélin rakst í, skömmu áður en hún brotlenti í ánni. „Það leið yfir mig um leið og vélin rakst í bílinn,“ á leigubílstjórinn að hafa sagt við lækninn. Bílstjórinn, sem kallaður er Zhou, er enn á sjúkrahúsinu og segir læknir hans að honum sé mikið brugðið. Þá á hann að hafa fundið fyrir miklum sársauka í augum.

Undir kvöld í Taívan var unnið að því að hífa skrokk vélarinnar upp úr ánni.

vísir/afp
Vísir/EPA
.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×