Mannskaði í Moore 22. maí 2013 02:00 Heimt úr helju Þessi stúlka bjargaðist giftusamlega þegar skólinn hennar jafnaðist við jörðu er skýstrokkur gekk yfir Moore í Oklahomaríki. FRéttablaðið/AP
Að minnsta kosti 24 létust, þar á meðal sjö börn hið minnsta, þegar risavaxinn hvirfilbylur, einn sá öflugasti sem mælst hefur, gekk yfir bæinn Moore í úthverfi Oklahomaborgar í Bandaríkjunum í fyrrakvöld. Vindhraðinn í bylnum mældist allt að 320 kílómetrar á klukkustund, sem jafngildir um 90 metrum á sekúndu, og hann varð allt að þriggja kílómetra breiður. Meðal þess sem varð á vegi hans var Plaza Towers barnaskólinn sem varð rústir einar. Um 120 manns nutu aðhlynningar á sjúkrahúsum í gær á meðan björgunarsveitir og sjálfboðaliðar leituðu að eftirlifendum í rústunum og aðstoðuðu þá sem áttu um sárt að binda. Frekara illviðri var í kortunum þótt það væri ekkert í líkingu við það sem yfir hafði gengið. Hvirfilbyljir eru algengir á þessum slóðum og hafa fjórir stórir hvirfilbyljir gengið yfir Moore á síðustu fimmtán árum. Árið 1999 létust 48 manns í enn öflugri byl. Þar mældist vindstyrkur hærri en nokkru sinni hefur þekkst á jörðu niðri, um 142 metrar á sekúndu. Rétt tvö ár eru síðan 158 létu lífið í hvirfilbyl sem gekk yfir bæinn Joplin í Missouri-ríki, en það er mannskæðasti hvirfilbylur sem um getur í sögu Bandaríkjanna. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira