SUNNUDAGUR 26. MAÍ NÝJAST 23:03

Cristiano Ronaldo markakóngur Meistaradeildarinnar

SPORT

Mannréttindi heima og heiman

Fréttablaðið Skoðun 17. apríl 2012 06:00
Guðbjartur Hannesson
velferðarráðherra og Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.
Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson skrifa:
Samkvæmt Íslenskri orðabók eru mannréttindi „tiltekin grundvallarréttindi hverrar manneskju, óháð þjóðerni, kynþætti, kyni, trú og skoðunum". Mannréttindahugtakið hefur þróast í margar aldir. Fyrst um sinn náði það einkum utan um borgaraleg réttindi hins frjálsa manns, en ekki hinna sem voru ófrjálsir eða ófrjálsar. Í dag þætti fjarstæðukennt hér á landi að ætla aðeins sumum að njóta kosningaréttar, en ekki þarf að líta nema hundrað ár aftur í tímann til að sjá allt annan veruleika.


En hvernig er staða mannréttindahugtaksins á Íslandi í dag?
Á undanförnum misserum hefur verið unnið að því að greina aðkomu íslenskra stjórnvalda að mannréttindamálum hér innanlands og utan og gera hana markvissari í framkvæmd. Mannréttindi skipa nú sérstakan sess í innanríkisráðuneytinu en snerta engu að síður starfsemi allra ráðuneyta, beint og óbeint. Velferðarráðuneytið fer þar með sérlega mikilvægt hlutverk, enda er aðgengi að heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu samofið mannréttindahugtakinu eins og það hefur þróast. Mennta- og menningarmálaráðuneyti og utanríkisráðuneyti eru einnig þýðingarmikil í þessu sambandi og eiga þessi ráðuneyti öll ómetanlegt samstarf um mannréttindamál. Á þetta ekki síst við um mótun landsáætlunar í mannréttindamálum sem nú stendur yfir en markmiðið með henni er að mannréttindasjónarmið eigi að vera undirstaða allrar stefnumörkunar í samfélaginu og í verkum stjórnvalda.


Alþjóðlegt samstarf nauðyn
Mannréttindi eru bæði innlent og alþjóðlegt viðfangsefni. Frá stofnun hafa Sameinuðu þjóðirnar sett mannréttindi í öndvegi, enda var ljóst eftir seinni heimstyrjöld að alþjóðleg samstaða yrði að ríkja um virðingu fyrir mannréttindum. Með Mannréttindasáttmála Evrópu, sem samþykktur var um miðja síðustu öld, tóku ríki álfunnar höndum saman í von um að tryggja frið, frelsi og mannréttindi.

Starf Evrópuráðsins er hornsteinn mannréttindamála í Evrópu og hefur Ísland tekið þátt í starfi ráðsins frá árinu 1950. Mannréttindasáttmálar Evrópuráðsins hafi haft veigamikla þýðingu fyrir þróun mannréttinda á Íslandi og er nýlegasta dæmið samningur Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun og misneytingu gegn börnum. Fullgilding hans stendur nú fyrir dyrum hér á landi og í undirbúningi er átak til vitundarvakningar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum.

Eftir hrun hefur dregið úr formlegri aðkomu Íslands að starfi Evrópuráðsins en það er álitamál hve lengi skuli svo búið um hnúta. Mannréttindastarf Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins er mikilvægasta alþjóðlega samstarf sem Ísland tekur þátt í, enda hefur það bein áhrif hér heima sem og utan landsteinanna.


Athugasemdir mannréttindaráðs
Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sátu íslensk stjórnvöld nýverið fyrir svörum í svonefndu Universal Periodic Review (UPR). Þetta er ný tilhögun á vettvangi mannréttindaráðs SÞ sem er ætlað að varpa ljósi á það sem vel er gert í framkvæmd mannréttindamála en einnig að vekja athygli á því sem betur mætti fara. Eins og heitið gefur til kynna er áhersla á að skoðunin fari fram á jafningjagrundvelli ríkja. Ríkin beina tilmælum hvert til annars en umfjöllunarefnið hverju sinni er ástand mannréttindamála í því ríki sem situr fyrir svörum, ekki þeirra ríkja sem leggja fram tillögur.

Fyrirspurnir og tillögur annarra ríkja, sem settar voru fram í fyrirtöku Íslands, hafa verið aðgengilegar á vefsíðu mannréttindaráðsins um nokkurt skeið, auk þess sem gerð var grein fyrir þeim á vef innanríkisráðuneytisins og á opnum fundi í Hörpu þann 9. desember sl. Lokaskýrsla fyrirtektarinnar var tekin til samþykktar á fundi mannréttindaráðsins 15. mars sl.

Íslensk stjórnvöld fengu fjölmargar jákvæðar athugasemdir í UPR-ferlinu og er litið til Íslands sem fyrirmyndar á sumum sviðum. Fulltrúar í mannréttindaráðinu veittu meðal annars athygli aðgerðum íslenskra stjórnvalda til að vinna að jafnrétti kynjanna, aðgerðum gegn mansali og vændi, bættri löggjöf um hælisleitendur, auk þess sem Barnahúsinu var hrósað sérstaklega og stjórnvöld hvött til þess að vinna að útbreiðslu þess á alþjóðavettvangi svo eitthvað sé nefnt.

Eftir skoðun sérfræðinga stjórnsýslunnar samþykktu íslensk stjórnvöld ríflega 67 af þeim 84 athugasemdum sem settar voru fram eða lýstu því yfir að þær væru þegar komnar til framkvæmda. Um 12 athugasemdir verða teknar til skoðunar og kannað hvort ástæða sé til að verða við þeim.

Flestar athugasemdanna lutu að áhyggjum af stöðu útlendinga, kynbundnu ofbeldi og meðferð kynferðisbrota og heimilisofbeldismála, kynferðislegu ofbeldi gegn börnum, jafnrétti kynjanna og fangelsismálum. Einnig voru íslensk stjórnvöld hvött til að koma á laggirnar innlendri mannréttindastofnun í samræmi við alþjóðleg viðmið og undirgangast ýmsar mannréttindaskuldbindingar.


Verk að vinna
Það er okkar mat að Íslendingar hafi verk að vinna í mannréttindamálum, bæði heima og heiman. Í því skyni þarf að efla framlag Íslands á því sviði. Ábendingar erlendis frá tökum við alvarlega, útskýrum okkar málstað ef með þarf og færum hlutina til betri vegar eftir því sem við á. Ísland á í engu að vera eftirbátur annarra þjóða í mannréttindamálum.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Skoðun 25. maí 2013 06:00

Síðasta grein fjallkonunnar

Herdís Þorvaldsdóttir lést á Landsspítalanum þann 1. apríl síðastliðinn. Þá um nóttina lofuðum við barnabörnin henni að halda áfram baráttunni fyrir gróðurvernd og uppgræðslu landsins. Meira
Skoðun 25. maí 2013 06:00

Engar eyjar í netheimum

Þessi grein varpar ljósi á aukið mikilvægi þess að almenningur sé meðvitaður um þær hættur sem leynast á netinu og hvaða ráð einstaklingar hafa til að öðlast aukið öryggi. Meira
Skoðun 25. maí 2013 06:00

Af hverju er ég leikskólakennari?

Ég var frekar áttavilltur unglingur. Hvað mig langaði að verða þegar ég yrði stór var ekki mikið sem ég spáði í. Sérstaklega eftir að það varð ljóst að ég yrði seint atvinnumaður í knattspyrnu. Meira
Skoðun 24. maí 2013 06:00

Misnotkun Sorpu staðfest

Með úrskurði frá 21. mars. sl. staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að Sorpa byggðarsamlag hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið samkeppnislög og bær... Meira
Skoðun 24. maí 2013 06:00

Ríkisstjórn sérhagsmuna

Fráfarandi ríkisstjórn var ríkisstjórn almannahagsmuna sem hafði jöfnuð og velferð að leiðarljósi og stuðlaði markvisst að hvoru tveggja, fyrst og fremst með traustri efnahagsstjórn sem náði stjórn á ... Meira
Skoðun 24. maí 2013 06:00

„Hraunavinum“ svarað

Um langt árabil hafa Álftnesingar þurft að aka að og frá heimilum sínum um gamlan hættulegan veg, Álftanesveginn, og alltof mörg okkar hafa lent í óhöppum og slysum á veginum eða komið að slíkum gegnu... Meira
Skoðun 24. maí 2013 06:00

Raunhæfar tillögur um umbætur í opinberri þjónustu

Samráðsvettvangur um aukna hagsæld á Íslandi kom saman í þriðja sinn 8. maí sl. en vettvangurinn var settur á laggirnar í janúar 2013. Stofnun vettvangsins má rekja til skýrslu Mckinsey ráðgjafafyrirt... Meira
Skoðun 24. maí 2013 06:00

Borgarráð niðurgreiðir daggæslu í öðrum sveitarfélögum

"Starfsmenn leikskóla Reykjavíkur með lögheimili utan Reykjavíkur með börn í vistun hjá dagforeldri fá greidda hærri niðurgreiðslu.“ Svona hljóðar byrjun á breytingu á reglum skóla og frístundar... Meira
Skoðun 24. maí 2013 06:00

Með hvað er verið að sýsla?

Það er ekki að ástæðulausu sem almennir borgarar taka upp pennann og skrifa um heilbrigðismál á þann hátt sem gert hefur verið undanfarna mánuði og ár. Meira
Skoðun 23. maí 2013 07:00

Ouagadougou

Næringarspítalar eru skrýtnir staðir. Lífshættulega vannærð börn liggja um allt og halda ekki höfði. Sum börnin enduðu hér eftir að hafa drukkið óhreint vatn heima sem olli endurteknum magakveisum og ... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Aðgerðir gegn brottfalli

Eitt af þeim samfélagslegu markmiðum sem ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar setti í sóknaráætlun til ársins 2020 er að hlutfall Íslendinga á aldrinum 20-66 ára sem ekki hafa lokið formlegu nám... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

„Túrbínutrixið“ í Helguvík

1970 var merkilegt ár í íslenskri virkjana- og náttúruverndarsögu, ár Laxárdeilunnar og greinar Nóbelskáldsins, "Hernaðurinn gegn landinu“, sem er enn í fullu gildi. Stjórn Laxárvirkjunar notaði... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Maltneska fyrirmyndin og Evrópa

Ísland hefur nú gert fríverslunarsamning við Kína og er það af hinu góða. Hins vegar breytir það litlu varðandi þá staðreynd að Evrópumarkaðurinn er og verður langmikilvægasti markaður fyrir íslenskar... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Færar leiðir til aukinnar framleiðni

Það hafa margir gripið á lofti þær góðu ábendingar sem finna má í skýrslu ráðgjafafyrirtækisins McKinsey um framleiðni á Íslandi. Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Stalínísk stórmennska í Gálgahrauni

Vegagerðin og Garðabær hafa skilað innanríkisráðherra greinargerð vegna nýs Álftanesvegar um Gálgahraun. Í greinargerðinni er því hafnað að hægt sé að koma til móts við óskir Hraunavina og annarra nát... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Mannréttindi, spilling og fjölbreytni

Ansi víða þar sem ég hef verið og komið á undanförnum árum og mánuðum á Íslandi hefur mér fundist beinlínis óþægilegt að finna hvað fólk er oft hikandi við að segja skoðanir sínar. Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Að fá lánað

Sem barn lærði ég muninn á að fá lánað og að fá gefins. Þegar ég lánaði bestu vinkonu minni hjólaskautana mína þá vildi ég fá þá alveg eins til baka. Og ekki bara annað stykkið heldur bæði því ég var ... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Merkur stjórnmálamaður og ríkisstjórn kveðja

Árið 2009 lét Jóhanna Sigurðardóttir undan þrábeiðni forystu Samfylkingarinnar og tók við tröllauknustu viðfangsefnum stjórnmála lýðveldistímans. Til hennar var leitað vegna heiðarleika hennar, heilin... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Síðasti séns

Í dag, 23. maí, rennur út frestur til að gera athugasemdir við nýtt deiliskipulag um Austurvöll, Fógetagarð og Ingólfstorg. Ég hvet þig, lesandi góður, til að senda inn athugasemdir við téð skipulag a... Meira
Skoðun 22. maí 2013 06:00

Heimilin alltaf í forgang

Orð formanns Framsóknarflokksins um að staða og horfur í ríkisfjármálum væru verri en áður var talið féllu í grýttan jarðveg. Fráfarandi ráðherrar og stuðningsmenn fóru beint í skotgrafirnar og töluðu... Meira
Skoðun 22. maí 2013 06:00

Heitir rassar og hárlaus höfuð

Eftirfarandi viðbrögð hefur skemmtikraftur líklega aldrei þurft að heyra eftir að viðskiptavinur spyr hann hvað hann rukki fyrir vinnu sína: "Hva, þú getur nú gert þetta ódýrt fyrir okkur, við erum að... Meira
Skoðun 22. maí 2013 06:00

Hvað er verðbólga pabbi?

Upp úr árunum frá 1970 hófst skeið óðaverðbólgu á Íslandi og frá þeim tíma hefur verðbólga verið viðloðandi íslenskt efnahagslíf eins og ólæknandi sjúkdómur. Verðbólgan hefur skotið rótum í þjóðfélagi... Meira
Skoðun 21. maí 2013 09:30

Opin miðborg í andlitslyftingu

Margumbeðnar og löngu tímabærar endurbætur á Hverfisgötu hefjast innan tveggja mánaða. Stór hluti götunnar verður lagfærður í tveimur áföngum frá júlí og fram í október: Fyrst frá Vitastíg vestur að F... Meira
Skoðun 21. maí 2013 07:00

Skarpari en skólakrakki?

Á vef landlæknisembættisins er að finna marga nafnalista yfir þá sem fengið hafa starfsleyfi í heilbrigðisþjónustu m.a. ljósmæður, lækna, sjúkraþjálfara, sálfræðinga og aðrar stéttir sem starfa í heil... Meira
Skoðun 21. maí 2013 07:00

Strangtrúaðir netverjar

Stuttu fyrir Hrunið skrifaði ég pistil í bók og velti fyrir mér hvort það væri tilviljun að skopmyndirnar af Múhameð spámanni hefðu birst í einu stærsta dagblaðinu í Danmörku á sama tíma og Dansk Folk... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Skoðun / Mannréttindi heima og heiman
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000