Menning

Mannlífið í fyrirrúmi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þrándur sá snemma að langbestu teiknararnir voru málarar fyrri alda.
Þrándur sá snemma að langbestu teiknararnir voru málarar fyrri alda.
„Myndefnið er aðallega götur og torg í miðbænum, meðal annars úr Grjótaþorpinu en mannlífið er í fyrirrúmi,“ segir Þrándur Þórarinsson um efni sýningar hans Stræti, sem opnuð verður í dag klukkan 16 í Port verkefnarými að Laugavegi 23b.

Þrándur er nýfluttur til landsins eftir fjögurra ára búsetu í Kaupmannahöfn, þar sem hann er líka að undirbúa stóra einkasýningu í Nord­atlantens Brygge. Þemað er Kristjanía, nútímamyndir en í gömlum stíl. Ein myndin á Stræti er úr þeirri seríu.

Þrándur kveðst hafa málað síðan í menntaskóla. „Ég var á myndlistarbraut í MA. Guðmundur Ármann var þar prímus mótor og leiddi mig fyrstu skrefin í þessu lagskipta málverki sem ég hef fengist við síðan. Þar byrjaði ég líka að leggjast yfir gömlu meistarana og klassíska málverkið sem kallaði sterkt á mig.

Ég hef verið að teikna frá blautu barnsbeini og sá það snemma að langbestu teiknararnir voru málarar fyrri alda.“



Fantasía af Hótel Íslandsplaninu.
Þrándur komst í kynni við norska málarann Odd Nerdrum þegar hann flutti suður. Var svo heppinn að kunna norsku reiprennandi, enda hálfnorskur sjálfur.

„Ég sá Odd vera að skjótast inn í Mál og menningu á Laugaveginum og gaf mig á tal við hann, það varð til þess að ég var nemandi hjá honum í nokkur ár. Þá bjó hann í gamla borgarbókasafninu við Þingholtsstræti og þar voru stóru spurningarnar ræddar. Ég hefði ekki getað fengið betri kennara.“

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 6. ágúst 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×