Viðskipti innlent

Mannfjöldinn svo mikill að Costco kerrur kláruðust

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Eins og sjá má var gífurleg röð í morgun.
Eins og sjá má var gífurleg röð í morgun. Vísir/Stefán Óli
Viðskiptavinir hafa flykkst í verslun Costco í dag þegar búðin opnaði klukkan 10 en 100 bíla röð var út á Reykjanesbraut í morgun og í hádeginu. Mikil röð var jafnframt inn í sjálfa búðina eins og sjá má á myndum.

Að sögn blaðamanns Vísis á svæðinu er svo mikið margmenni í búðinni í dag að ekki er nægilegur fjöldi kerra fyrir alla og hjálpast viðskiptavinir nú að við að taka úr kerrum og setja vörur inn í bíla svo að næsti viðskiptavinur geti fengið kerruna.

Líkt og sjá má á eftirfarandi loftmynd er fjöldi kerra gífurlegur við Costco og augljóst að margt er um manninn.

Vísir/Jói K
Í samtali við Vísi segir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, að lögreglan fylgist grannt með umferð á svæðinu og staðfesti hann að röð bílanna að aðreininni í Kauptún við Reykjanesbraut væri löng.

Það sama virðist því ætla að vera uppi á teningnum í dag og í gær þegar vel á annað hundrað manns mætti fyrir utan vöruhús Costco í Kauptúni, áður en verslunin opnaði. Tónlistarmaðurinn Herbert Guðmundsson tók mynd í búðinni í gærkvöldi um áttaleytið sem sýndi mikinn mannskap í búðinni.

Sé tekið mið að röðinni við opnun verslunarinnar bæði í dag og í gær er ljóst að áhugi Íslendinga á Costco virðist ekki fara minnkandi en þegar verslunin opnaði á þriðjudagsmorgun mættu færri en búist hafði verið við.

Verslunin hefur ekki boðið upp á nein opnunartilboð eins og stundum er venjan en líkt og verðkönnun bendir til er mismunandi hvort Costco bjóði betra verð en íslenskir aðilar. Íslenskir neytendur virðast ekki ætla að gæta sín á svokölluðum Costco áhrifum

Vísir/Stefán Óli

Tengdar fréttir

Costco býður ekki alltaf besta verðið

Framkvæmdastjóri Elko segir fyrirtækið ætla að veita Costco verðsamkeppni á raftækjamarkaði. Matarinnkaup hagstæð í Costco en í mörgum tilfellum þarf að kaupa í miklu magni. Bjóða tískuföt á lægra verði en áður þekktist.

Vatn Costco ódýrara en skilagjald flöskunnar

Costco í Garðabæ selur hálfan lítra af vatni í plastflöskum á ellefu krónur stykkið. Skilagjald drykkjarumbúða er 16 krónur á flösku og því fimm krónum hærra en verðlagning Costco.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×