Enski boltinn

Mane bestur hjá stuðningsmönnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mane fagnar einu marka sinna fyrir Liverpool.
Mane fagnar einu marka sinna fyrir Liverpool. vísir/getty
Sadio Mane, leikmaður Liverpool, hefur verið valinn leikmaður ágúst- og septembermánaðar af stuðningsmönnum liðanna í ensku úrvalsdeildinni.

Næstum því 78 þúsund manns tóku þátt í valinu og fékk Mane 38.199 atkvæði.

Kevin de Bruyne, leikmaður Man. City, varð annar með 24.340 atkvæði og Etienne Capoue hjá Watford varð þriðji með 6.256 atkvæði.

Mane er búinn að skora þrjú mörk og leggja upp eitt fyrir utan að hafa spilað ákaflega vel í upphafi leiktíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×