Fótbolti

Man City komið áfram eftir jafntefli við Gladbach | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Manchester City er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 1-1 jafntefli við Borussia Mönchengladbach á útivelli í kvöld.

Man City endar í 2. sæti C-riðils en liðið er komið með átta stig. Gladbach endar í 3. sæti og fer í Evrópudeildina eftir áramót.

Brasilíumaðurinn Raffael kom Gladbach yfir með hörkuskoti á 23. mínútu.

Þjóðverjarnir héldu forystunni fram í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar David Silva jafnaði metin. Hann potaði þá boltanum yfir marklínuna eftir sendingu Kevins De Bruyne.

Ekkert mark var skorað í seinni hálfleik en tvö rauð spjöld fóru á loft. Lars Stindl, fyrirliði Gladbach, fauk af velli á 51. mínútu og tólf mínútum síðar fór Fernandinho hjá Man City sömu leið. Þeir verða báðir í banni í lokaumferð riðlakeppninnar.

Gladbach 1-0 Man City Gladbach 1-1 Man City



Fleiri fréttir

Sjá meira


×