Íslenski boltinn

Mamman lauk málinu

Kristján Flóki verður í hvítu í sumar.
Kristján Flóki verður í hvítu í sumar. mynd/hafliði
Kristján Flóki Finnbogason, framherji U19 ára landsliðs Íslands, er genginn í raðir uppeldisfélags síns FH frá FC Kaupmannahöfn í Danmörku.

Kristján Flóki er staddur í Rúmeníu með unglingalandsliðinu en móðir hans, Svana Huld Linnet, skrifaði undir þriggja ára samning við FH í hans umboði í Kaplakrika.

Mál Kristjáns Flóka hefur verið hið undarlegasta, en Breiðablik gaf út yfirlýsingu 17. mars um að það væri búið að ganga frá þriggja ára samningi við leikmanninn.

Svana Huld Linnet og Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH.mynd/fimleikafélagið
Það reyndist einfaldlega ekki vera rétt. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var Kristján Flóki aldrei búinn að skrifa undir samning við Breiðablik. Á mánudag sendu Blikar frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að félagið væri búið að ná samkomulagi við leikmanninn í gegnum umboðsmann hans. Blikar höfðu einnig gengið frá öllu gagnvart FCK.

Þessum dansi er nú lokið og er Kristján Flóki kominn aftur heim í Kaplakrika. Það þýðir ekki að Blikar séu í skýjunum enda eru þeir að skoða sína stöðu með aðstoð lögfræðinga.

Kristján Flóki kom við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni með FH; einum árið 2012 og öðrum 2013, áður en hann gekk í raðir FC Kaupmannahöfn.

Blikar í vandræðum

Þetta er ákveðið áfall fyrir Breiðablik sem er nú í smá framherjakrísu. Félagið lét Elvar Pál Sigurðsson fara til Leiknis á dögunum og þá yfirgaf Árni Vilhjálmsson auðvitað Blika í vetur og hélt í atvinnumennsku. Elfar Árni Aðalsteinsson hélt svo norður og samdi við KA.

Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, er þó enn með Ellert Hreinsson og tvítuga Bosníumanninn Ismar Tandir til að stilla upp í framlínuna.

„Fyrst þetta er niðurstaðan þá óska ég honum góðs gengis hjá FH. Þetta er búið að vera leiðindamál,“ segir Arnar en hann er eðlilega ekki í skýjunum.

„Þetta er ekkert frábært. Það gefur augaleið. Ég er ekkert hoppandi kátur með þetta. Þetta eru bara leiðindi og nú er það afgreitt. Það þýðir ekkert að ræða það meira núna. Ég veit ekki hvort það verða einhverjir eftirmálar af þessu. Við erum að skoða okkar leikmannamál á fullu. Við ætluðum að bæta einum manni við ásamt Kristjáni Flóka en nú breytist það í tvo leikmenn.“


Tengdar fréttir

Arnar Grétars: Ég er ekkert hoppandi kátur

"Hvað á maður að segja?," voru fyrstu viðbrögð þjálfara Breiðabliks, Arnars Grétarssonar, við því að Kristján Flóki Finnbogason væri búinn að semja við FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×