Fótbolti

Mamma Eiðs Smára: Sigurmark frá syninum það besta sem gæti komið fyrir í lífinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólöf Einarsdóttir, móðir Eiðs Smára Guðjohnsen, var einn þeirra Íslendinga sem Kolbeinn Tumi Daðason og Björn Sigurðsson, tökumaður, hittu á fyrir utan írska barinn O'Sullivans í hádeginu í dag þar sem Íslendingar hituðu upp fyrir stórleikinn gegn Austurríki.

Ólöf viðurkenndi að hún væri svolítið stressuð fyrir leiknum en vonaðist til að Eiður Smári fengi að spila í dag og helst lengur en í leiknum gegn Ungverjalandi í Marseille.

„Ég hef það stórkostlegt en er svolítið kvíðin. Það er pínu í maganum og fer upp í hjarta. Ég er með sting í hjartanu,“ sagði Ólöf sem fannst æðislegt að sjá móttökurnar sem sonurinn fékk þegar hann kom inn á gegn Ungverjum í Marseille.

„Í fyrsta lagi fannst mér hann koma of seint inn á en það er bara mitt mat. Mér leið stórkostlega vel og ég fann stuðning þjóðarinnar,“ sagði Ólöf.

„Allir Íslendingarnir sem voru á staðnum fögnuðu honum svo vel og mikið og þökkuðu honum kannski á sama tíma fyrir allt sem hann hefur gert fyrir íslenska landsliðið og íslenska knattspyrnu í heild sinni.“

Ólöf er með stórfjölskyldunni í Frakklandi. Hún hefur vitaskuld verið í sambandi við son sinn og segir að honum líði vel með landsliðinu á EM.

„Honum líður bara mjög vel. Við erum hérna með börnin hans og konuna hans, tengdaforeldra og dóttur mína. Honum líður mjög vel og er rosalega bjartsýnn og er tilbúinn að leggja af stað í næsta leik," sagði hún, en er draumurinn ekki sigurmark frá Eiði í dag?

„Það væri það besta sem gæti komið fyrir í lífinu hjá okkur. Það myndi toppa hans 20 ára feril. Við bara spilum til sigurs. Við spilum ekki upp á jafntefli,“ sagði Ólöf Einarsdóttir.

Hér að ofan má sjá Kolbein Tuma og Björn Sigurðsson spjalla við Íslendinga í góðu fjöri í dag en viðtalið við Ólöfu kemur eftir 16 mínútur og 40 sekúndur.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×