Handbolti

Mamelund samdi við Kiel

Mamelund kominn í treyju Kiel.
Mamelund kominn í treyju Kiel. mynd/kiel
Kiel er búið að semja við hinn 31 árs gamla Norðmann, Erlend Mamelund. Hann gerði eins árs samning við félagið og kemur frá Haslum í Noregi.

Mamelund er klárlega ekki í sama gæðaflokki og Jicha en styrkir samt liðið. Mamelund var kominn heim til þess að klára ferilinn en gat ekki sleppt þessu tækifæri.

„Það var mikill heiður að fá þetta kall frá Kiel. Ég hefði ekki yfirgefið heimahagana fyrir neitt annað félag," sagði Mamelund sem ætti að styrkja varnarleik liðsins mikið.

„Erlend er mjög sterkur varnarmaður. Hann mun þurfa nokkrar vikur til að komast almennilega í gang en ég tel að hann muni hjálpa okkur með reynslu sinni og leikstíl," sagði Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel.

Sem sárabót fyrir að missa Mamelund þá mun Kiel spila æfingaleik í Haslum.


Tengdar fréttir

Jicha fer til Barcelona

Eftir mikið japl, jaml og fuður er ljóst að Tékkinn Filip Jicha er á förum frá Kiel til Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×