Lífið

Mama June deitaði annan barnaníðing

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Mama June.
Mama June. vísir/getty
Raunveruleikastjarnan Mama June, sem heitir réttu nafni Shannon, hefur verið mikið í fjölmiðlaumræðunni vestan hafs að undanförnu eftir að upp komst um ástarsamband hennar og Mark McDaniel en hann er dæmdur barnaníðingur.

Í kjölfarið voru þættirnir Here Comes Honey Boo Boo teknir af dagskrá á sjónvarpsstöðinni TLC en Shannon og fjölskylda hennar eru í aðalhlutverkum í þáttunum.

Nú er það komið uppá yfirborðið að Shannon átti í ástarsambandi með Michael Anthony Ford fyrir einhverjum árum síðan og eignaðist með honum dótturina Jessicu, sem er stundum kölluð Chubbs, en Jessica er sautján ára í dag. Michael þessi var dæmdur fyrir að misnota barn á internetinu árið 2005. Þetta kemur fram á vefsíðu Perez Hilton.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×