Erlent

Mal­mö: Hæsta morð­tíðnin á Norður­löndum en á engan hátt „Chi­cago Sví­þjóðar“

atli ísleifsson skrifar
Á síðustu árum hafa morðmál á Skáni verið á milli tíu til sautján á ári.
Á síðustu árum hafa morðmál á Skáni verið á milli tíu til sautján á ári. Vísir/Getty
Ellefu morð voru framin í Malmö á síðasta ári og það sem af er ári hafa þrjú til viðbótar bæst við. Þessi mikli fjöldi hefur skiljanlega vakið mikla athygli í Svíþjóð og víðar og hafa ákveðnir hópar reynt að draga upp mynd af borginni sem „Chicago Svíþjóðar“.

Sydsvenskan hefur farið í saumana á tölunum til að kanna hvort að fótur sé fyrir lýsingunni og komist að því að svo sé engan veginn, þó að morðtíðnin í borgunum báðum hafi aldrei verið hærri en á síðasta ári. Ellefu í Malmö, 762 í Chicago.

Mikið hefur verið fjallað um mikla glæpa- og morðtíðni í Chicago á síðustu misserum og hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti meðal annars hótað því að senda alríkislögregluna til borgarinnar til að stemma stigu við þróuninni.

Sú mesta á Norðurlöndum

Í frétt Sydsvenskan kemur fram að morðtíðnin í Malmö sé sú hæsta á Norðurlöndum. Samkvæmt þeim gögnum sem blaðamaður Sydsvenskan tók saman voru tvær stærstu borgir Svíþjóðar, Stokkhólmur og Gautaborg, báðar með 1,3 morð á hverja 100 þúsund íbúa á ári, árin 2011 til 2013. Tíðnin í Malmö er mun hærri, 3,4 morð á hverja 100 þúsund íbúa (2016).

Turning Torso í Västra hamnen í Malmö.Vísir/Getty
Í Chicago er tíðnin 28 morð á hverja 100 þúsund íbúa (2016), í St. Louis í Missouri 59 morð á hverja 100 þúsund íbúa (2015) og venesúelsku höfuðborginni Caracas 120 morð á hverja 100 þúsund íbúa (2015).

„Í Malmö sjáum við fleiri ofbeldisverk sem leiða til dauða, oft skotárásir gengja, en í öðrum borgum í Svíþjóð og á Norðurlöndum. En tíðnin er mun hærri í mörgum öðrum evrópskum borgum,“ segir afbrotafræðingurinn Sven Granath, sem starfar hjá embætti ríkislögreglustjóra í Svíþjóð.

Sé litið til Skánar allrar höfðu 27 morð verið framin um miðjan desember á síðasta ári. Þau höfðu ekki verið skráð fleiri, að minnsta kosti frá aldamótum, en blaðamenn Sydsvenskan rannsökuðu gögn aftur til þess tíma.

Ekki bara hægt að rekja til gengjaátaka

Malmö er þriðja stærsta borg Svíþjóðar með um 330 þúsund íbúa, en á Skáni búa um 1,3 milljónir manna, um 12 prósent landsmanna.

Í grein Sydsvenskan frá í desember segir að morðmálin á Skáni séu orðin það mörg að lögreglan eigi í mestu vandræðum með að rannsaka þau öll. Þó séu það ekki einungis morð í tengslum við gengjaátök sem hafi rifið upp tölfræðina.

Á síðustu árum hafa morðmál á Skáni verið á milli tíu til sautján á ári.


Tengdar fréttir

Bullað um Malmö í rússnesku sjónvarpsinnslagi

Í rússneska sjónvarpsþættinum Voskresnoje vremja kom fram að fimmtíu morð hafi verið framin í Malmö á síðasta ári. Ellefu morð voru í raun framin í borginni 2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×