Innlent

Málskotsréttur forseta verði óþarfur með málskotrétti þjóðar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson vísir/vilhelm
Umræður spunnust um málskotsrétt í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, og Birgitta Jónsdóttir, Pírati, beindu fyrirspurnum til Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, og vildu vita hver skoðun hans væri bæði á málskotrétti þjóðarinnar og þingmanna.

„Ef þriðjungur þingmanna gæti sent mál til þjóðarinnar myndi það tryggja að þingmenn næðu meiri sátt og við myndum losna við það mikla meirihlutaræði sem hefur viðgengist á þingi,“ sagði Árni Páll meðal annars. Hann benti á að í kjölfarið væri hægt að leggjast í breytingar á þingsköpum t.d. með því að stytta ræðutíma.

„Hugmyndir um málskotsrétt þingmanna hafa komið fram á þessu kjörtímabili og áður og ég tel þær vera til staðar því fólkið í landinu hefur ekki rétt til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði Bjarni Benediktsson í svari sínu. Hann tók fram að ef þjóðin hefði slíkan rétt þá væri samskonar heimild þingmanna næsta óþörf.

Fjármálaráðherrann bætti einnig við að „hvers vegna í ósköpunum ætti þriðjungur þings að geta sent mál í þjóðaratkvæði þegar ákveðið hlutfall þjóðarinnar kallar ekki eftir því?“ Þingmennirnir voru að auki sammála um að ef slíkar heimildir yrðu teknar inn í stjórnarskrána að málskotsréttur forseta yrði óþarfur um leið.

Þegar kom að fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur tók hún upp þráðinn þar sem Árni Páll hafði sleppt honum og spurði ráðherran hve hátt hlutfall kosningabærra manna ætti að þurfa til að koma málum í þjóðaratkvæði.

„Þetta er mikilvægt málefni en vandmeðfarið á svo stuttum tíma,“ svaraði Bjarni. „Mér þykir ekki eingöngu skipta máli hve marga þarf til að senda málið til þjóðarinnar heldur einnig hver kosningaþátttakan er.“ Hann telur einnig að á meðan kjördæmaskipan væri eins og hún er þá ætti að þurfa lágmarkshlutfall úr hverju kjördæmi til að skjóta málum til þjóðarinnar.  


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×