Formúla 1

Mallya: Litlar breytingar væntanlegar eftir sumarfrí

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Vijay Mallya, liðsstjóri Force India.
Vijay Mallya, liðsstjóri Force India. Vísir/Getty
Force India gerir ekki ráð fyrir miklum breytingum í goggunarröð Formúlu 1 liða eftir sumarfrí. Ástæðuna fyrir þessu segir liðsstjórinn Vijay Mallya, vera að liðin einbeiti sér að breytingum næsta árs.

Búast má við uppstokkun á næsta ári þegar miklar breytingar eru væntanlegar. Bílarnir verða fljótari og munu hafa meira grip. Liðin eru að sögn Mallya líklega búin með þá þróun sem mun eiga sér stað í ár.

Slíkt kæmi sér vel fyrir Force India sem ætlar sér að ná í bestu niðurstöðu sína í keppni bílasmiða í ár. Liðið er sem stendur í fimmta sæti, 15 stigum á eftir Williams í fjórða sæti.

„Okkur vegnar vel og við erum að skila góðum niðurstöðum, Spa brautin veitir okkur gott tækifæri til að ílengja stigasöfnun okkar,“ sagði Mallya.

„Ég held að öll liðin séu nú farin að einbeita sér að 2017 og goggunarröðin ætti því ekki að taka miklum breytingum. Sumar brautir munu henta okkur betur en aðrar, Spa er sérstaklega spennandi braut fyrir okkar bíl. Uppfærslurnar sem við kynntum til sögunnar á Silverstone brautinni hafa virkað vel og við eigum ögn meira inni,“ sagði Mallya.

Formúlu 1 tímabilið heldur áfram eftir sumarfrí á Spa brautinni í Belgíu næstu helgi.


Tengdar fréttir

Kvyat: Hættur að njóta mín í Formúlu 1

Daniil Kvyat viðurkennir að hann hafi hætt að njóta sín í Formúlu 1 eftir stöðulækkun til Toro Rosso. Hann telur að óánægja sín hafi áhrif á frammistöðu sína.

Alonso spenntur fyrir bílum næsta árs

Fernando Alonso ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 spáir því að bílar næsta árs vekji hrifningu ökumanna. Hann gerir ráð fyrir því að þeir eigi eftir að virka vel fyrir ökumenn og áhorfendur.

Segir Schumacher bregðast við meðferð

Fyrrum stjórnarformaður Ferrari, Luca Cordero de Montezemolo, segir að ökuþórinn fyrrverandi, Michael Schumacher, sé loksins farinn að bregðast við meðferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×