Erlent

Malik og Farook komu til Chicago í júlí 2014

Atli Ísleifsson skrifar
Tashfeen Malik og Syed Rizwan Farook komu til Bandaríkjanna í Chicago í júlí á síðasta ári eftir heimsókn Farook til Sádi-Arabíu.
Tashfeen Malik og Syed Rizwan Farook komu til Bandaríkjanna í Chicago í júlí á síðasta ári eftir heimsókn Farook til Sádi-Arabíu. Mynd/Bandaríska landamæraeftirlitið
Tashfeen Malik og Syed Rizwan Farook komu til Bandaríkjanna í Chicago í júlí á síðasta ári eftir heimsókn Farook til Sádi-Arabíu. Parið skaut fjórtán manns til bana á jólaskemmtun í San Bernardino í Kaliforníu í síðustu viku.

Bandarísk yfirvöld hafa nú birt mynd úr öryggismyndavél á flugvellinum í Chicago þar sem þau sjást fara í gegnum vegabréfaeftirlit. Parið var þá nýkomið frá Sádi-Arabíu þar sem þau höfðu gift sig og farið í pílagrímsferð til Mekka.

Að sögn AP hafði parið orðið róttækt í skoðunum yfir lengri tíma og stundað skotæfingar á skotæfingasvæðum í Bandaríkjunum. Síðasta æfingin hafi verið einungis fjórum dögum áður en þeir skutu fjórtán og særðu 21 á jólaveislu vinnustaðar Farook í San Bernardino í Kaliforníu.

Starfaði sem eftirlitsmaður

Farook starfaði sem eftirlitsmaður á veitingastöðum í San Bernardino. Hann var fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum af pakistönskum foreldrum sínum. Malik var pakistanskur innflytjandi sem kom til Bandaríkjanna og fékk dvalarleyfi eftir að hafa kvænst Farook.

Farook og Malik féllu nokkrum klukkutímum eftir árásina eftir skotbardaga við lögreglu.

Bróðirinn ötull baráttumaður gegn hryðjuverkum

Á sama tíma og Farook varð æ róttækari í skoðunum sínum hafði eldri bróðir hans – Syed Raheed Farook – unnið ötullega gegn hryðjuverkum. Reuters greinir frá því að eldri Farook-bróðirinn hafi fengið tvær viðurkenningar frá bandaríska sjóhernum fyrir framlag sitt í stríðinu gegn hryðjuverkum.

Sjá einnig: Fjöldamorðin í Kaliforníu: Parið var nýbúið að eignast sitt fyrsta barn

Bræðurnir ólust báðir upp undir sama þaki, fóru í sama skóla og áttu marga sameiginlega vini. Enn er ekki vitað hvað olli því að yngri bróðirinn varð róttækur í skoðunum sínum.

Shakib Ahmed, vinur bræðranna, segir í samtali við Reuters að yngri Farook-bróðirinn hafi verið alvarlegri og trúaðri en eldri bróðirinn. Einungis eldri bróðirinn gat fengið þann yngri til að breyta skapi. „Hann var vingjarnlegur við allra, en var ráðandi í eðli sínu. Hann gat öskrað á bróður sinn,“ segir Ahmed.

Hittust á stefnumótasíðu

Skömmu fyrir árásina í síðustu viku lýsti Malik trúmennsku við leiðtoga ISIS-samtakanna. Í enskumælandi útvarpsþætti ISIS-samtakanna er parinu lýst sem „hermönnum kalífadæmisins“ sem „féllu á vegi Allah“, segir AFP.

James Comey, yfirmaður FBI, hefur áður sagt að ekkert bendi til þess að ISIS hafi skipulagt árásina með beinum hætti.

Sjá einnig: Parið í San Bernardino var með vopnabúr á heimili sínu

Reuters greinir frá því að Farook hafi skráð sig á stefnumótasíðu fyrir múslima árið 2013 þar sem hann sagðist vera að læra Kóraninn utanbókar og að hann leitaði að konu sem „tæki trú sína alvarlega og reyndi alltaf að bæta sig í trúnni og hvetja aðra til að gera slíkt hið sama.“

Þau Malik og Farook áttu saman sex mánaða gamalt barn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×