Innlent

Malbikað í veðurblíðunni í borginni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Tíminn nýttur til malbikunar í Laugardalnum í dag, 13. febrúar.
Tíminn nýttur til malbikunar í Laugardalnum í dag, 13. febrúar. vísir/gva
Verið var að malbika á Engjavegi í Laugardalnum þegar ljósmyndari Vísis átti þar leið um í dag. Óvenjulegt er að malbikað sé á þessum tíma árs, í febrúar, enda vanalega frekar kalt og blautt.

Það hefur hins vegar verið einmuna veðurblíða undanfarið og var því tækifærið nýtt í dag og farið í viðgerðir á Engjaveginum, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg, enda sé reynt að fara í slík verkefni eins fljótt og verða má.

Hvort að hægt verði að halda áfram að malbika í borginni næstu daga kemur í ljós en miðað við veðurspána er það nokkuð ólíklegt þar sem það er rigning í kortunum.

Það er spurning hvort hægt verði að malbika á fleiri stöðum í borginni næstu daga.vísir/gva
Veðurhorfur á landinu eru annars þessar næstu daga:

Sunnan 3-8 og víða léttskýjað norðan og norðaustanlands annars suðaustan 5-13 metrar á sekúndu, skýjað með köflum og dálítil rigning eða súld. Samfelldari úrkoma sunnan- og vestantil á morgun en styttir upp norðvestantil annað kvöld. Hiti 1 til 7 stig, en vægt frost í innsveitum norðaustan til.

Á miðvikudag:

Fremur hæg breytileg átt. Skýjað og víða rigning en slydda til fjalla. Hiti 1 til 6 stig.

Á fimmtudag:

Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 metrar á sekúndu. Skýjað mðe köflum og stöku él norðantil, annars þurrt. Hiti 0 til 4 stig við suðurströndina en vægt frost annars staðar.

Á föstudag:

Vaxandi austanátt með rigningu eða slyddu um sunnanvert landið en snjókomu norðantil síðdegis. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost á norðanverðu landinu fram eftir degi.

Á laugardag:

Austlæg átt og él með austur- og norðurströndinni en skýjað með köflum og úrkomulítið sunnantil. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:

Útlit fyrir suðvestanátt sunnanlands en norðaustanátt norðantil með úrkomu í flestum landshlutum og heldur kólnandi veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×