Erlent

Malaysia Airlines flýgur yfir átakasvæði í Sýrlandi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hér má sjá flugleið vélarinnar MH4
Hér má sjá flugleið vélarinnar MH4 MYND/FLIGHTRADAR
Eftir að lofthelgi yfir átakasvæðunum í Úkraínu var lokað í kjölfar árásarinnar á MH17 síðastliðinn fimmtudag hafa flugfélög sem flogið hafa yfir austurhluta landsins þurft að breyta flugleiðum sínum.

Malaysia Airlines er þar engin undantekning og flugvél félagsins sem var á leið frá Kúala Lúmpúr til Lundúna í gær því beint þess í stað yfir Sýrland. Vefsíðan Flightradar24, sem heldur utan um flugumferð í heiminum, birti mynd af flugleið vélar Malaysia Airlines á Twitter-síðu sinni í morgun.

Þar má greinilega sjá hvernig vélin MH4 flýgur yfir landið en þar hefur ríkt hatrömm borgarstyrjöld frá fyrri hluta árs 2011 milli stuðningsmanna Bashar al-Assad forseta og uppreisnarmanna. Þrátt fyrir að ekki sé bannað að fljúga yfir Sýrland hafa flugmálayfirvöld víðsvegar um heiminn mælt „sterklega gegn því,“ meðal annars þau bandarísku í maí 2013.

Breytingin á flugleið MH4 endurspeglar þann vanda sem mörg flugfélög sem fljúga milli Asíu og Evrópu standa frammi fyrir eftir að lofthelgi Úkraínu var lokað því erfitt getur reynst að sneiða hjá átakasvæðunum í Austurlöndum nær. Hundruðir flugvéla fóru yfir austurhluta Úkraínu á degi hverjum en samkvæmt Evrópusamtökum flugmanna var flugleiðin ein sú fjölfarnasta í heiminum. Nú þurfa þessar vélar að halda annað, til að mynda í gegnum sýrlenska og afganska lofthelgi.


Tengdar fréttir

Harmleikurinn í Úkraínu

Flugvélin var af gerðinni Boeing 777 á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur þegar hún hvarf af ratsjám. 298 týndu lífi.

Farþegaþota með 295 farþegum innanborðs hrapar í Úkraínu

Boeing-vél malasíska flugfélagsins Malaysian Airlines á leið frá Amsterdam til Kuala Lumpur var skotin niður á landamærum Úkraínu og Rússlands, samkvæmt heimildum Interfax. 295 farþegar voru um borð og eru allir taldir af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×