Menning

Málar mynstur gamalla útskurðargripa

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ég er alltaf að vinna í myndlist,“ segir Sæunn og kveðst nota akrýl og vatnsliti.
"Ég er alltaf að vinna í myndlist,“ segir Sæunn og kveðst nota akrýl og vatnsliti.
„Ég er bara að ljúka við að hengja upp verkin, þau eru eitthvað um 40, bæði málverk og pappírsverk,“ segir Sæunn Þorsteinsdóttir myndlistarkona stödd í Gallerí Ormi í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Hún ætlar að opna sýninguna Mynstur þar á morgun, sunnudaginn 21. ágúst klukkan 16.

Sæunn er uppalin í Skógum undir Eyjafjöllum og segir sum af málverkunum unnin eftir skissum sem hún gerði á safninu þar. „Ég hef alltaf verið heilluð af fortíðinni og því hvernig hún fléttast saman við samtímann og vísar veg til framtíðar,“ segir hún. Hún finnur líka gömlum íslenskum landshlutakortum og vörulistum ný hlutverk með því að brjóta pappírinn í origami-form og raða saman í hringmynstur.



Eitt verkanna á sýningunni.
„Ég er alltaf að vinna í myndlist,“ segir Sæunn sem er ásamt níu öðrum með hönnunar -og listagallerí á Skólavörðustíg 21. Skúmaskot heitir það og er í húsnæði gömlu Fatabúðarinnar.

„Aðalvandinn undanfarnar vikur var að selja ekki of mikið svo ég hefði eitthvað til að sýna,“ segir hún glaðlega.

Sýningin í Sögusetrinu stendur til 15. september milli klukkan 9 og 18.

Greinin birtist fyrst 20. ágúst 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×