Skoðun

Málamiðlun Landsvirkjunar

Steinar Kaldal skrifar
Meirihluti atvinnuveganefndar hefur lagt til, án faglegrar, lögboðinnar undirbúningsvinnu við rammaáætlun, að landsvæðið við Skrokköldu á miðjum Sprengisandi verði nýtt undir virkjun. Ef Skrokkölduvirkjun kæmist á laggirnar yrði enn frekar gengið á víðerni miðhálendisins, þrátt fyrir yfirlýsta stefnu stjórnvalda um verndun þeirra.

Sérstaða miðhálendisins felst að stórum hluta í víðernunum. Ferðamenn, innlendir sem erlendir, sækja þangað til að upplifa ómanngert umhverfi og njóta náttúrunnar í sinni tærustu mynd. Það veitir þeim sem ferðast hafa á miðhálendinu vellíðan að sækja í ferðaminningarnar þaðan. Þeir mæla með hálendinu sem áfangastað við aðra, bera út boðskapinn, markaðssetja það. Tilfinningagildin gera þannig sitt gagn og ferðaþjónustan, stærsta atvinnugrein landsins, sem skilaði 303 milljörðum í gjaldeyristekjur á síðasta ári, græðir á tilfinningum þeirra sem upplifa töfra miðhálendisins.

Samrýmist ekki hugmyndum ferðamanna

Yfir 90 prósent ferðamanna sem heimsóttu hálendið telja víðerni vera hluta af aðdráttarafli staðarins. Þetta kemur fram í rannsókn Önnu Dóru Sæþórsdóttur, dósents í ferðamálafræði. Anna Dóra lagði spurningalista fyrir ferðamenn á 11 áfangstöðum á hálendinu. Virkjunarmannvirki, stíflur, miðlunarlón og raflínur samrýmast því ekki hugmyndum ferðamanna um hálendið.

Landsvirkjun er eitt þeirra orkufyrirtækja sem vill ráðast í virkjanaframkvæmdir á landinu. Stór hluti virkjanakosta fyrirtækisins er á hálendinu. Stefna Landsvirkjunar varðandi samfélagsábyrgð hefur tekið stakkaskiptum eftir að nýir stjórnendur tóku við taumunum. Fyrirtækið er opnara en áður og sýnir vilja til samtals við þá sem eru á öndverðum meiði í virkjanamálum, og er það vel.

Þetta mátti til dæmis heyra í máli Harðar Arnarsonar í Morgunútgáfu RÚV fyrir stuttu. Þar nefndi hann meðal annars að áform Landsvirkjunar myndu á engan hátt hrófla við Aldeyjarfossi í Skjálfandafljóti. Þá sagðist hann sjá fyrir sér að hægt væri að tvöfalda friðuð svæði utan jökla á hálendinu. Ef rýnt er nánar í þessa hugmynd þá yrði reyndar ekki um stórt svæði að ræða og virkjanahugmyndir fyrirtækisins gætu líklega eftir sem áður allar rúmast enn á teikniborðinu.

Í framhaldi af þessum ummælum Harðar sagði hann að þeir sem væru á móti frekari virkjunum á miðhálendinu þyrftu að sýna vilja til málamiðlunar. En hver yrði sú málamiðlun? Væri það til dæmis málamiðlun að ef Aldeyjarfoss í Skjálfandafljóti fengi áframhaldandi tilverurétt þá mætti Landsvirkjun fara af stað með virkjanahugmyndir sínar á svæðum sem eru í núverandi verndarflokki rammaáætlunar? En fyrirtækið óskaði m.a. eftir því, að í þriðja áfanga rammaáætlunar yrðu kannaðar virkjanahugmyndir við Norðlingaöldu í jaðri Þjórsárvera, Bjallavirkjun, Tungnárlón og Hólmsá við Einhyrning, sem allar eru í núverandi verndarflokki áætlunarinnar. Það yrði lítil sátt um það.

Röskunin er nú þegar mikil

Miðhálendið er nú þegar raskað af virkjanaframkvæmdum. Á suðurhluta þess eru sex aflstöðvar og raflínur tengdar þeim, Kárahnjúkavirkjun var reist á austurhluta hálendisins og í norðri er Blöndulón. Fleiri uppistöðulón og raflínur má svo finna á hálendinu. Ef áform Landsvirkjunar næðu fram að ganga og haldið yrði áfram inn á lítt snortin stór svæði myndu víðernin verðmætu smám saman glata gildi sínu.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×