Viðskipti innlent

Mál MS aftur á borð Samkeppniseftirlitsins

Bjarki Ármannsson skrifar
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála segir MS hafa beðið með að framvísa mikilvægum gögnum við fyrstu rannsókn.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála segir MS hafa beðið með að framvísa mikilvægum gögnum við fyrstu rannsókn. Vísir/Stefán
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála leggur fyrir Samkeppniseftirlitið að rannsaka nánar verðlagningu MS á hrámjólk til tengdra fyrirtækja sinna annars vegar og samkeppnisaðila hins vegar. Í tilkynningu til fjölmiðla segir að MS hafi við meðferð málsins fyrir Samkeppniseftirlitinu látið undir höfuð leggjast að upplýsa um samning við Kaupfélag Skagfirðinga, sem fyrirtækið síðan byggði málflutning sinn á fyrir áfrýjunarnefnd.

Forsaga málsins er sú að forsvarsmenn Mjólkurbúsins Kú kærðu MS og Kaupfélag Skagfirðinga til Samkeppniseftirlitsins fyrr í haust og kvörtuðu undan því að Kú þyrfti að greiða hærra verð fyrir hrámjólk en þeir keppinautar mjólkurbúsins sem tengjast MS. Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu í september að MS hefði gerst sekt um brot á samkeppnislögum um misnotkun á markaðsráðandi stöðu.

Fyrir áfrýjunarnefnd lagði MS fram samning við Kaupfélag Skagfirðinga frá árinu 2008 sem aldrei hafði verið vísað til eða greint frá, að því er segir í tilkynningu áfrýjunarnefndar, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir um skýringar og gögn vegna málsins. Því telji nefndin sér skylt að koma málinu aftur til meðferðar Samkeppniseftirlitsins. Þar verður meðal annars kannað hvers vegna gögnin voru ekki lögð fram við upphaflega rannsókn málsins, en viðurlög geta legið við því að halda upplýsingum frá eftirlitinu við rannsókn máls.


Tengdar fréttir

KÚ kærir MS og KS

Mjólkurbúið KÚ hefur kært Mjólkursamsöluna (MS) og Kaupfélag Skagfirðinga (KS) til Samkeppniseftirlitsins fyrir brot á Samkeppnislögum.

Umræðan um MS jók söluna

Aukning á sölu mjólkurvara mjólkurvinnslunnar Örnu var vel merkjanleg í síðustu viku, að því er samlagsstjórinn, Hálfdán Óskarsson, greinir frá. Aukninguna telur Hálfdán vera vegna umræðunnar um Mjólkursamsöluna, MS.

Samkeppnisbrot Mjólkursamsölunnar kalli á endurskoðun búvörulaga

Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að samkeppnislagabrot Mjólkursamsölunnar kalli á tafarlausa endurskoðun búvörulaga. Hann segir ljóst að neytendur hafi orðið fyrir miklu tjóni vegna þessa og segir nauðsynlegt að Mjólkursamsölunni verði gert að keppa á sömu forsendum og aðrir.

Áætlar tjón sitt 200 milljónir króna vegna brota MS

Ólafur M. Magnússon framkvæmdastjóri Mjólkurbúsins Kú og stofnandi Mjólku áætlar að fyrirtæki á sínum vegum hafi tapað 200 milljónum króna vegna samkeppnisbrota Mjólkursamsölunnar (MS).

MS sektað um 370 milljónir króna

Samkeppniseftirlitið lítur brot MS á samkeppnislögum alvarlegum augum. Niðurstaðan kemur fyrirtækinu á óvart og hyggst það áfrýja málinu.

Öll tilskilin leyfi sem afurðastöð

Forsvarsmenn Mjólkursamsölunnar (MS) segja fyrirtækið með öll tilskilin leyfi til þess að kalla sig afurðastöð og benda á að á þeim grundvelli hafi stjórnvöld fjallað um fyrirtækið. Því sé ekki rétt sem Ólafur M. Magnússon haldi fram að MS sé ekki afurðastöð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×