Skoðun

Mál að linni...

Gunnar Alexander Ólafsson skrifar
Í meira en áratug hef ég fylgst með þróun starfsemi Landspítala – Háskólasjúkrahúss (LSH) og skrifaði meistararitgerð í heilbrigðisstjórnun um sameiningu spítala í Reykjavík á sínum tíma. LSH er mikilvægasta heilbrigðisstofnun landsins, aðalsjúkrahús þess og aðalkennslustofnun í heilbrigðisfræðum. Í dag fer aðalstarfsemi LSH fram á tveimur stöðum, við Hringbraut og í Fossvogi (gamli Borgarspítalinn). Síðan ákvörðun var tekin árið 2002 um að framtíðarstaðsetning spítalans eigi að vera við Hringbraut hefur svæðið verið hannað og skipulag þess samþykkt, byggingar hannaðar og framkvæmdir hafnar. Það sem meira máli skiptir er að hönnun stærstu byggingarinnar, sk. meðferðakjarna sem mun rísa við Hringbraut, er í fullum gangi og frumhönnun rannsóknarhúss hefur verið auglýst.

Ég hef verið hugsi yfir staðsetningu Landspítala og á köflum efins um hvort Hringbraut sé hentugasta staðsetningin. Fyrir um ári síðan gerði ég skýrslu um Landspítalann, þar sem m.a. var lagt til að byggður væri nýr spítali á nýjum stað. Undanfarna mánuði hef ég hins vegar sannfærst um að við eigum að reisa nýjar byggingar LSH við Hringbraut. Þetta segi ég nú vegna þess að það er lífsnauðsynlegt fyrir faglega framþróun spítalans að nýjar byggingar rísi sem fyrst. Við erum nú þegar farin að missa af hæfu heilbrigðisstarfsfólki sem hefur menntað sig erlendis sem kýs heldur að starfa þar áfram í stað þess að koma heim í úreltar byggingar og lélega vinnuaðstöðu. Byggingaframkvæmdir nýs Landspítala þola ekki meiri töf eða lengri bið og að mínu mati eigum við að spýta í lófana og flýta framkvæmdum. Samkvæmt áætlunum er gert er ráð fyrir því að meðferðakjarninn verði ekki tekinn í notkun fyrr en árið 2023.

Stórskaðlegt að tefja framkvæmdir

Það er stórskaðlegt fyrir framþróun og gæði íslenskrar heilbrigðisþjónustu að slá af eða tefja fyrirhugaðar framkvæmdir við Landspítala við Hringbraut til að byggja spítalann á nýjum stað. Það gæti tafið verkið um 10 ár, jafnvel lengur þar sem hefja þyrfti nýtt skipulagsferli, breytingar á svæðis- og aðalskipulagi viðkomandi sveitarfélaga og deiliskipulagsgerð. Áður en að hægt væri að fara í hönnunarvinnu þyrfti að fara í frumathugunargerð sem tæki fimm ár. Við frumathugun tæki við greiningarvinna (18 mánuðir) og svo áætlunargerð (fimm ár). Alls óvíst er hve mikið væri hægt að nýta þá vinnu sem þegar hefur verið unnin varðandi uppbyggingu á Landspítala. Umræðan um nýjan spítala á nýjum stað skilar okkur engu nema frestun á málinu sem við megum ekki við, því við megum engan tíma missa.

Því tel ég að við eigum að leggjast öll á eitt og sameinast um að byggja upp nýjan og öflugan Landspítala við Hringbraut sem verði enn öflugri miðstöð heilbrigðisþjónustu, þróunar, vísinda, þekkingar, kennslu, innleiðingar nýrra meðferða og gæðaþróunar.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×