Innlent

Makríltalning: Segir samningsstöðu Íslands styrkjast

Atli Ísleifsson skrifar
Makríll.
Makríll. Vísir/Getty
37 prósent af heildarvísitölu makríls var í íslenskri efnahagslögsögu í nýloknum sameiginlegum makrílleiðangri Færeyinga, Íslendinga, Norðmanna og Grænlendinga.

Í frétt frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins segir að aldrei hafi mælst meira af makríl í íslenskri efnahagslögsögu.

„Heildarvísitala makríls á svæðinu sem mælingin náði yfir var metin um 7,7 milljón tonn, þar af voru tæp 2,9 milljón tonn innan íslenskrar efnahagslögsögu eða rúm 37% af heildarvísitölunni. Enginn vafi er á að þessi niðurstaða styrkir stöðu Íslands í komandi samningaviðræðum um hlut Íslands í makrílveiðum.

Heildarvísitalan í ár er 1,3 milljón tonnum lægri en á síðasta ári en þá var hún sú hæsta síðan rannsóknirnar hófust árið 2007. Vísitala makríls innan íslenskrar lögsögu hefur hins vegar aldrei verið eins há og í ár, en síðustu þrjú ár var vísitalan þar um 1,6 milljón tonn.

Mesta þéttleika makríls var að finna suður af Íslandi og náði útbreiðslan þar sunnar en áður hefur sést. Heildarstærð svæðisins sem kannað var í ár var lítið eitt stærra en á síðasta ári en eins og undan farin ár, var aðeins lítill hluti lögsögu Evrópusambandsins kannaður,“ segir í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×