Handbolti

Makedónía marði Færeyjar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Elena Gjeorgjievska skoraði tvö mörk fyrir Makedóníu.
Elena Gjeorgjievska skoraði tvö mörk fyrir Makedóníu. vísir/getty
Makedónía vann nauman sigur á Færeyjum, 21-19, í forkeppni HM 2017 í handbolta í kvöld.

Þessi lið eru með Íslandi í riðli en íslenska liðið vann fjögurra marka sigur, 28-24, á Austurríki í fyrri leik dagsins. Ísland og Makedónía eru því bæði með tvö stig en Austurríki og Færeyjar án stiga.

Íslenska liðið mætir því færeyska á morgun en með sigri er Ísland svo gott sem komið áfram í umspil um sæti á HM sem verður haldið í Þýskalandi í desember á næsta ári.

Sara Ristovska var markahæst í liði Makedóníu með sex mörk.

Anna Brimnes skoraði sömuleiðis sex mörk fyrir Færeyjar en aðeins fimm leikmenn komust á blað í færeyska liðinu í leiknum í kvöld.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×