Lífið

Maíspá Siggu Kling – Sporðdreki: Mikil frjósemi í kortunum!

Elsku Sporðdrekinn minn. Það er bara allt að gerast og það er svo há tíðni yfir orkunni þinni núna og búnar að vera miklar sveiflur. Alveg niður í angist og kvíða og svo upp í dásamlega bjartsýni og kraft.

Núna ferð þú að sjá að það er að koma einhver lausn á þessu öllu saman.

Ef þú ert búinn að vera eitthvað veikur, þá finnur þú kraftinn þinn aukast og þú ríst einhvern veginn upp. Ef þú ert búinn að vera óttasleginn út af þessum hraða sem hefur stundum verið á þér, þá munt þú skynja að þú ert orðinn sterkari og tilbúinn að standa með þér.

Þú hefur engu að tapa svo taktu áhættu, og þið eruð mörg sem eruð búin að taka mikla áhættu, því að spennan er svo mikil í kringum þig.

Það er mikil frjósemi í kortunum hjá þér elskan mín, svo ef þú ætlar ekki að verða ófrísk eða verða pabbi á næstunni þá þarf að gera varúðarráðstafanir!

Frjósemin færir þér líka hugmyndir og sýnir þér leiðir til þess að losa þig við það gamla og byrja á nýjum hlutum. Það ert þú sem ert að skrifa þetta dásamlega lífshandrit ásamt alheiminum, ekki gleyma því.

Ef þú ert í ástarhugleiðingum, ekki hugsa þá of langt fram í tímann. Hugsaðu frekar: Lífið er núna, ástin er núna. Og ef það sem þú vilt og þarft er ekki að virka fyrir þig þá skalt þú ekki örvænta, þá kemur önnur ást.

Ekki dvelja of lengi við þráhyggju og hugsa svo mikið um það sem þú þráir að það verði hindrun. Þú þarft að leyfa huganum að flæða eins og fiðrildi sem flýgur um, þá byrja hlutirnir að gerast í réttri röð.

Það er mikilvægt að þú sért ekki að drepast úr skynsemi, því að hún gerir líf þitt bara leiðinlegt. Elskaðu hvatvísina þína því að allt er að gerast á miklum hraða núna.

Ef þú skynjar ekki það sem ég er að segja með tíðnina yfir orkunni þá getur það verið að þú sért búinn að vera dofinn í einhvern tíma, þá nær lífskrafturinn ekki í þig en hafðu það í huga, elsku Sporðdrekinn minn, að þú þarft ekki að breyta öllu til þess að allt breytist.

Lífið er yndislegt,

þín Sigga Kling

Frægir sporðdrekar: Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari.


Tengdar fréttir

Maíspá Siggu Kling – Vog: Hafðu skýr skilaboð í ástinni

Elsku Vogin mín. Þú átt eftir að fara á svo skemmtilegu brokki inn í sumarið. Það er svo margt að gerast hjá þér að það er eins og þú sért stödd í lest, horfir út um gluggann og sjáir lífið og umhverfið þjóta fram hjá þér á fullu spani.

Maíspá Siggu Kling – Hrútur: Notaðu stressið sem orkugjafa

Elsku hjartans kraftmikli og þrjóski Hrúturinn minn. Það er búin að vera sérlega mikil spenna hjá þér og þér hefur fundist eins og þú hafir ekki framkvæmt nóg eða gert allt sem þú ætlaðir þér að gera og þar af leiðandi er einhver smá pirringur á sveimi í kringum þig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×