Lífið

Maíspá Siggu Kling – Fiskur: Trúðu á þinn eigin mátt – þannig kallar þú til þín jafnvægi og hamingju

Elsku Fiskurinn minn. Þú ert að verða eitthvað svo sjóaður, steinhættur að taka inn á þig alla hluti og farinn að treysta því að lífið sé að dekra við þig.

Þú ert svo skemmtilega meðvirkur og stundum er jafnvel hægt að kalla þig svolítið stjórnsaman en það er af því að þú vilt redda öllu og bjarga, og láta öllum líða vel.

Núna ert þú búinn að finna nýja leið til að verða afslappaðri gagnvart streitunni í kringum þig og ert miklu sjálfsöruggari gagnvart vinum og kunningjum.

Það er hægt að segja að þú nærð svo sannarlega miklu betri tökum með svona orku, heldur en hefur áður verið.

Þú átt eftir að hrinda í framkvæmd hugmyndum sem þú ert búinn að ganga með í maganum og þú munt finna nýjar leiðir til að láta drauma þína verða að veruleika. Það er kannski gott að staldra örlítið við og spyrja þig hvað þú myndir vera að gera ef að peningar skiptu engu máli og hefðu engin áhrif. Og þegar þú sérð að það er nákvæmlega það sem þú ert að gera þá ert þú svo sannarlega á réttri leið.

Það er einhver manneskja í kringum þig sem pirrar þig töluvert. Það er gott fyrir þig að hrósa henni bara því það mun brjóta múrana og gera hlutina auðveldari. Það kemur á óvart hversu mikill umsnúningur verður á hlutunum í kringum þig út af einhverju litlu atriði sem þú hjálpaðir einhverjum öðrum með fyrir nokkru síðan.

Tímabilið sem er að koma mun gefa þér frelsi og þó að í frelsi felist ábyrgð þá tekur þú öllu á léttvægari máta en þú ert vanur að gera, elsku Fiskurinn minn.

Það er eitthvað svo eðlislægt að þér finnist þú þurfa að gera miklu, miklu meira en þú þarft fyrir aðra, til þess að eiga eitthvað skilið. Ég get alveg lofað þér að þú ert að gera meira en nóg, og ert að fara að uppskera gjafir frá veröldinni vegna þess að þú ert með mikla innistæðu hjá almættinu.

Hættu að vera á tánum, og trúðu á þinn eigin mátt, það er lykillinn til að kalla til sín jafnvægi og hamingju fyrir næstu mánuði.

Lífið er yndislegt, þín Sigga Kling

Frægir fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign og Baby Kling.


Tengdar fréttir

Maíspá Siggu Kling – Vog: Hafðu skýr skilaboð í ástinni

Elsku Vogin mín. Þú átt eftir að fara á svo skemmtilegu brokki inn í sumarið. Það er svo margt að gerast hjá þér að það er eins og þú sért stödd í lest, horfir út um gluggann og sjáir lífið og umhverfið þjóta fram hjá þér á fullu spani.

Maíspá Siggu Kling – Hrútur: Notaðu stressið sem orkugjafa

Elsku hjartans kraftmikli og þrjóski Hrúturinn minn. Það er búin að vera sérlega mikil spenna hjá þér og þér hefur fundist eins og þú hafir ekki framkvæmt nóg eða gert allt sem þú ætlaðir þér að gera og þar af leiðandi er einhver smá pirringur á sveimi í kringum þig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×