Sport

Maia grét eftir að hafa leikið sér að Condit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Maia réð ekki við tilfinningar sínar eftir bardagann í nótt.
Maia réð ekki við tilfinningar sínar eftir bardagann í nótt. vísir/getty
Brasilíska kyrkislangan Demian Maia, sem fór illa með Gunnar Nelson í desember, vann enn einn risasigurinn í búrinu í nótt.

Þá afgreiddi hann Carlos Condit í fyrstu lotu. Maia náði Condit niður eftir aðeins 30 sekúndur og ekki svo löngu síðar gafst Condit upp. Þessi sigur skipti Maia gríðarlegu máli og hann brotnaði niður og grét beint eftir bardagann.

Þetta var sjötti sigur Maia í röð í UFC. Condit barðist um beltið í veltivigtinni í janúar gegn Robbie Lawler og tapaði þá á dómaraúrskurði. Alvöru gaur en var eins og lamb í höndunum á Maia.

Tölfræðin hjá Maia í síðustu bardögum er lyginni líkust. Hann er búinn að fá á sig aðeins 13 högg í síðustu fjórum bardögum. Það voru heldur ekki bardagar gegn neinum smá mönnum heldur gegn Condit, Matt Brown, Gunnari Nelson og Neil Magny. Til samanburðar má geta þess að Conor McGregor og Nate Diaz fengu báðir á sig yfir 160 högg í þeirra síðasta bardaga.

Það vissu allir hvað Maia ætlaði að gera en það virðist ekki vera hægt að stöðva fellurnar hans. Þegar í gólfið er komið hefur hann hreint ótrúlega yfirburði.

UFC hefur ekki viljað gefa hinum 38 ára gamla Maita titilbardaga til þessa en nú er ekki hægt að ganga fram hjá honum lengur.

Tyron Woodley og Stephen Thompson munu væntanlega berjast næst um beltið og Maia segist vera til í að bíða og mæta sigurvegaranum úr þeim bardaga um beltið.

Maia er hér að leika sér að Condit í gólfinu.vísir/getty
MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×