Sport

Maia: Gunnar er frábær bardagamaður

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Demian Maia var að vonum hæstánægður með sigurinn á Gunnari Nelson í nótt. Hann var sem fyrr yfirvegaður er blaðamenn hittu hann baksviðs.

„Mér líður frábærlega. Gunnar er frábær bardagamaður,“ sagði Maia en hann lýsti því yfir strax eftir bardagann að hann vildi næst keppa um heimsmeistarabeltið.

Heimsmeistarinn Robbie Lawler ver beltið í upphafi næsta árs gegn Carlos Condit. Maia vill fá tækifæri gegn sigurvegaranum og gæti fengið það eftir frábæra frammistöðu gegn Gunnari.

„Ég vissi að þetta yrði erfitt. Venjulega þegar ég fer í gólfið með mínum andstæðingum verður þetta auðvelt en ég vissi að það yrði ekki þannig með Gunnari. Hann sannaði sitt gildi í gólfinu gegn mér þar sem hann var góður.

Sjá má viðtalið við Maia hér að ofan.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×