Innlent

Magnús Ver vill 10 milljónir í bætur frá íslenska ríkinu

Birgir Olgeirsson skrifar
Magnús Ver sakar lögreglu og ríkissaksóknara um að hafa með freklegum og ósvífnum hætti brotið á grundvallarmannréttindum sínum.
Magnús Ver sakar lögreglu og ríkissaksóknara um að hafa með freklegum og ósvífnum hætti brotið á grundvallarmannréttindum sínum. Vísir/Valli
Fyrrverandi aflraunamaðurinn Magnús Ver Magnússon hefur krafið íslenska ríkið um tíu milljónir króna í miska- og skaðabætur fyrir ólögmæta meingerð.

Upphaf málsins má rekja til símtals sem Magnús Ver fékk frá lögreglunni þann 21. ágúst í fyrra. Í því símtali tilkynnti lögreglumaður Magnúsi Ver að lögreglan hefði beitt ýmsum rannsóknarúrræðum í rannsókn sem beindist að honum á sínum tíma, þar með talið að hlera síma hans, nota eftirfararbúnað í bifreið hans sem og að setja hlustunarbúnað í bifreið í umráðum Magnúsar.

Rannsakaður í þrjú ár

Magnús byggir bótakröfu sína á því að hafa verið rannsakaður af lögreglu í nærri þrjú ár en 1. október árið 2014 var lögmanni Magnúsar tilkynnt um að rannsókn málsins, þar sem Magnús hafði réttarstöðu grunaðs manns, væri lokið. Var Magnús grunaður um stórfellt fíkniefnasmygl að sögn lögmanns hans, Ólafs Karls Eyjólfssonar, en sá grunur reyndist ekki á rökum reistur og var rannsókn málsins hætt.

Beittur þvingunaraðgerðum

Á tilgreindum tíma var Magnús beittur þvingunaraðgerðum af hálfu lögreglu um tveggja mánaða skeið, í nóvember og desember 2012, þar sem lögreglu var heimilað að fá upplýsingar um úr og í hvaða símanúmer hringt var úr og í símanúmer Magnúsar svo og önnur símanúmer og símtæki sem hann hafði í eigu sinni eða umráðum.

Segist hafa verið rannsakaður án rökstudds gruns

Magnús byggir kröfu sína á því að rannsókn lögreglu hafi ekki átt rétt á sér og hafi verið tilefnislaus og án rökstudds gruns. Telur hann sig ekki hafa með nokkru móti valdið eða stuðlað að þeim aðgerðum sem hann reisir kröfu sína á. Segir hann gögn lögreglu staðfesta með engu móti rökstuddan grun, þar sem einungis hafi verið vísað til þess að lögreglu hafi borist upplýsingar en þær með engu staðfestar og var því að hans mati ekki um rökstuddan grun að ræða.

10 milljónir sanngjarnar bætur

Þá sakar hann lögreglu og ríkissaksóknara um að hafa með freklegum og ósvífnum hætti brotið á grundvallar mannréttindum sínum. Hann segir sig ekkert hafa gert til að kalla yfir sig þetta óréttlæti og telur að krafa um 10 milljónir króna í skaðabætur sé sanngjörn sé litið til þess hversu alvarlegt brotið er og hversu mikilvæg réttindi, friðhelgi einkalífs eru, sem vernduð eru af stjórnarskránni og lögum um mannréttindasáttmála Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×