Innlent

Magnús kaupir P. Samúelsson í dag

Toyota-umboðið á Íslandi skipti um eigendur í dag. Magnús Kristinsson útgerðarmaður kaupir P. Samúelsson hf. og var skrifað undir samninga nú fyrir hádegi.

Eftir 35 ára árangursríkt starf hefur Páll Samúelsson og fjölskylda selt Smáey ehf., sem er félag í einkaeigu Magnúsar Kristinssonar, allt hlutafé í P. Samúelssyni hf. og fasteignir þær sem tilheyra rekstri fyrirtækisins. Magnús tekur við rekstri félagsins frá og með deginum í dag, 20. desember 2005, og verður hann stjórnarformaður félagsins.

 

Páll Samúelsson segir að ástæðan fyrir sölu félagsins nú sé sú að þeim árangri sem fjölskyldan setti sér með rekstri félagsins hafi verið náð. „Fyrirtækið hefur náð yfirburðastöðu í fjölda bíla í umferð á Íslandi, verið söluhæst til margra ára, verið talið veita bestu þjónustu allra bílaumboða af viðskiptavinum til margra ára og verið rekið með góðum fjárhagslegum árangri. Það er því rétti tíminn til að selja nú og snúa sér að öðrum verkefnum,“ segir Páll.

Magnús Kristinsson, nýr eigandi og umboðsaðili Toyota og Lexus á Íslandi, segir að kaup hans á fyrirtækinu byggist á því að þetta sé vel rekið fyrirtæki með gott starfsfólk sem hann beri fyllsta traust til og voni að haldi áfram störfum. „Toyota-umboðið hefur ávallt lagt sig fram um að veita afburðaþjónustu og áherslan verður á að viðhalda og styrkja þann þátt starfseminnar auk þess að efla umboðið til lengri tíma. Toyota-bílar hafa verið þeir söluhæstu á Íslandi í mörg ár og það felast mörg sóknarfæri í Lexus-bílum sem hafa komið mjög sterkir inn á markaðinn undanfarin ár. Ég hlakka til að takast á við verkefnin sem eru framundan í samvinnu við starfsmenn,“ segir Magnús.

 

Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Páls og Magnúsar er kaupverð félagsins trúnaðarmál og ekki gefið upp.

 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×