Íslenski boltinn

Magnús: Evrópubaráttan lögð til hliðar

Árni Jóhansson skrifar
Vísir/Valli
Magnús Gylfason, þjálfari Vals, var ánægður með 2-1 sigur liðsins á Keflavík í kvöld. Valur komst upp í fimmta sæti deildarinnar með sigrinum.

Valsmenn ætluðu sér að berjast um Evrópusæti í sumar en Magnús sagði í viðtali eftir leik að það væri ekki tímabært miðað við stöðuna nú.

„Ég held að við þurfum að leggja baráttuna um Evrópusætið til hliðar í bili og einbeita okkur að einum leik í einu eins og gamla klisjan segir. Það er samt mikið eftir af mótinu, níu leikir og við höldum áfram að berjast en auðvitað var gott að komast upp fyrir Keflavík og upp um eitt sæti.“

Nánari umfjöllun hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×