Skoðun

Magnaður fundur Gráa hersins

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar
Félag eldri borgara í Reykjavík og Grái herinn héldu magnaðan fund í Háskólabíó í gærkvöldi þar sem um 1.000 manns mættu. Ég sat þar fyrir svörum ásamt fjölda stjórnmálamanna. Ég bað það fólk um að rétta upp hönd sem væri óánægt með kerfið og nánast allir réttu upp hönd. Ég skil vel þessa óánægju, er sjálf óánægð með hversu lágar greiðslurnar eru, hversu flókið kerfið er og hversu miklar tekjutengingarnar eru enn.

Greiðslur til eldri borgara og öryrkja eiga að fylgja kjarasamningum og hækka á sama tíma. Samfylkingin mun hækka greiðslur afturvirkt til 1. maí 2016 og hækka greiðslurnar með markvissum skrefum í 300.000 kr. á mánuði. Okkur finnst skerðingarnar í kerfinu of miklar og ósanngjarnar, og ætlum að byrja á því að afnema krónu á móti krónu skerðingarnar.

Við verðum að einfalda almannatryggingakerfið en við munum aldrei samþykkja nýtt kerfi sem ekki skilar meiri peningum í vasa þeirra sem minnst hafa, eins og nú er lagt til. Í nýja kerfinu minnkar líka hvatinn til atvinnuþátttöku. Það finnst okkur fáránlegt og því verður að breyta.

Besta heilbrigðisþjónustan

Við í Samfylkingunni erum sammála þeim 87.000 sem undirrituðu áskorun til stjórnvalda um aukna fjármuni í heilbrigðisþjónustuna. Við viljum bestu heilbrigðisþjónustu í heimi því við eigum ekki að sætta okkur við lakari heilbrigðisþjónustu en á Norðurlöndunum. Þetta er vel hægt. Við þurfum að efla Landspítala með auknum fjárveitingum og nýjum byggingum. Við þurfum að efla heilsugæsluna og veita meiri þjónustu þar. Svo stefnum við að gjaldfrjálsri þjónustu í markvissum skrefum. 

Eldri borgarar hafa mikilvægt hlutverk

Flestir eldri borgarar eru í fullu fjöri í vinnu, félagsstörfum eða á ferðalögum. Margt af þessu fólk heldur Íslandi gangandi með því að hugsa um aldraða foreldra sína, já, eldri borgarar eiga stundum foreldra á lífi, hugsa um aðra fjölskyldumeðlimi og barnabörnin. Oftast eru þessu störf ólaunuð en skipta miklu máli fyrir samfélagið.

Fyrir þá sem veikjast þurfum við að bjóða betri heimaþjónustu og fleiri hjúkrunarrými. Á versta niðurskurðartíma Íslandssögunnar eftir Hrun tókst okkur að byggja nær 400 hundruð hjúkrunarrými í 11 sveitafélögum. Nú þegar vel árar munum við setja markið á þau 500 rými sem vantar, en ég minni á að ekkert hjúkrunarrými hefur verið byggt á þessu kjörtímabili.

Við í Samfylkingunni óskum eftir nánu samstarfi við samtök eldri borgara því líf eldri borgara og þarfir eru að breytast eins og samfélagið allt. Eina leiðin til að gera þetta vel er að gera þetta saman. Sjáumst á kjörstað.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×