Lífið

Magnað dansatriði á Segway-hjólum og það við lag með Justin Bieber

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega flott atriði
Virkilega flott atriði vísir
Nú eru lítil Segway-hjól að tröllríða öllu og þykja þau gríðarlega vinsæl um heim allan.

Um er að ræða lítið tveggja hjóla tæki sem er knúið áfram á rafmagni. Í nýju myndbandi sem birt hefur verið á YouTube má sjá hóp stráka sýna listir sínar á hjólinu og dansa þeir við lagið What Do You Mean? með Justin Bieber.

Myndbandið er framleitt af David Moore en þegar þessi frétt er skrifuð hafa 1,5 milljónir manna horft á það á YouTube.

Myndbandið má sjá hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×