Tónlist

Magnað „mash-up“ af nýjustu plötu Adele

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hæfileikar Sam Tsui virðast hreinlega ekki takmarkast við neitt.
Hæfileikar Sam Tsui virðast hreinlega ekki takmarkast við neitt. Skjáskot

Svokallaðir stórnotendur á YouTube ættu að kannast við Sam Tsui sem er vel þekktur fyrir stórkostlegar útgáfur sínar af lögum stærstu tónlistarstjarna heimsins.

Hann réðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur að þessu sinni en hann tók sig til og blandaði saman hverju einasta lagi af nýjustu plötu Adele, 25, á aðeins fjórum mínútum.

Útkoman er ekkert annað en stórkostleg og nú þarf fólk ekki að hafa áhyggjur af því að velja uppáhaldslag sitt á 25, það er bara hægt að hlusta á þetta og fá þau öll beint í æð.


Tengdar fréttir

Hin eina sanna Adele

Í dag kom nýjasta plata söngkonunnar Adele, 25 út og er óhætt að segja að hennar hafi verið beðið með mikilli eftirvæntingu.

Adele að slá sölumet

Talið er að yfir 2,5 milljón eintaka af nýju plötu Adele muni seljast í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×