Innlent

Magn og útbreiðsla áþekk fyrri árum

Svavar Hávarðsson skrifar
Makrílleiðangur verður farinn í júlí.
Makrílleiðangur verður farinn í júlí. vísir/gva
Magn og útbreiðsla norsk-íslenskrar síldar innan íslensku landhelginnar austur af landinu er svipuð og undanfarin ár. Á svæðinu sunnan Jan Mayen mælist hins vegar öllu meira af síld en síðustu ár, og var þar í bland ókynþroska síld sem er óvenjulegt svona snemma árs. Kolmunni mælist í köntunum sunnan Íslands í svipuðu magni og síðustu ár.

Þetta eru frumniðurstöður þriggja vikna leiðangurs rannsóknaskips Hafrannsóknastofnunar, Árna Friðrikssonar, sem hafði það meginmarkmið að meta magn og útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar og kolmunna suður, austur og norður af Íslandi.

Þessi árlegi leiðangur í norðaustanvert Atlantshaf í maí hefur verið farinn síðan 1995 og tóku þátt í honum auk Árna Friðrikssonar rannsóknaskip frá Noregi, Færeyjum, Danmörku og Rússlandi. Niðurstöður leiðangursins eru meðal annars nýttar við stofnmat Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) á norsk-íslenskri síld og til að fylgjast með langtímabreytingum á vistfræði hafsins.

Sameiginleg úrvinnsla á leiðangursgögnum skipanna fimm mun fara fram á næstu vikum og verða niðurstöður kynntar og notaðar á fundi ICES í ágúst við mat á stofnstærð og til þess að veita ráðgjöf um veiði.

Ekkert varð vart við makríl í leiðangri Árna Friðrikssonar í ár en á undanförnum árum hafa yfirleitt fengist fáeinir fiskar í einstaka togum milli Íslands og Færeyja. Þessar niðurstöður gefa því ekki tilefni til að álykta eitthvað um makrílgengd inn á íslensk hafsvæði á komandi sumri. Í júlí verður farið í leiðangur til makrílrannsókna. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 24. maí




Fleiri fréttir

Sjá meira


×