Íslenski boltinn

Mætti of seint og var settur á bekkinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Efete í leik gegn Stjörnunni á dögunum.
Efete í leik gegn Stjörnunni á dögunum. vísir/anton
Michee Efete var settur á varamannabekk Breiðabliks vegna þess að hann mætti of seint í leikinn gegn Víkingi Ó. sem hefst núna klukkan 18:00.

Efete, sem er lánsmaður frá Norwich City á Englandi, átti að vera í byrjunarliði Blika í dag en mætti of seint í leikinn og Milos Milojevic, nýr þjálfari Breiðabliks, setti hann á bekkinn. Fótbolti.net greinir frá.

Viktor Örn Margeirsson kemur inn í byrjunarlið Breiðabliks fyrir Efete og spilar í hjarta varnarinnar með Damir Muminovic.

Fylgjast má með beinni textalýsingu frá leik Breiðabliks og Víkings Ó. með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×