Sport

Mætti í Batman-búningi á blaðamannafund fyrir bardaga

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Klitschko með öll beltin sín sem Fury ætlar að hirða af honum í næsta mánuði.
Klitschko með öll beltin sín sem Fury ætlar að hirða af honum í næsta mánuði. Vísir/Getty
Hnefaleikakappinn Tyson Fury vakti heldur betur athygli á blaðamannafundi í dag fyrir bardaga sinn gegn Wladimir Klitschko sem fer fram þann 24. október næstkomandi.

Mætti Fury í Batman-búningi á blaðamannafundinn og glímdi við mann í Joker-búningi áður en hann skipti yfir í hefðbundin jakkaföt.

Fury sem er 27 árs gamall breskur hnefaleikakappi mætir hinum úkraínska Wladimir Klitschko í bardaga upp á WBA, WBO og IBF titlana þann 24. október en bardaginn fer fram í Dusseldorf í Þýskalandi.

Vakti hann athygli á blaðamannafundinum í gær er hann gekk inn í Batman-búningi en hann skipti yfir í hefðbundin jakkaföt síðar á blaðamannafundinum. Myndir af Fury í búningnum má sjá hér fyrir neðan.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×