Glamour

Mæðgurnar Beyoncé og Blue Ivy í stíl í Gucci

Mæðgurnar skemmtu sér greinilega vel í París á dögunum.
Mæðgurnar skemmtu sér greinilega vel í París á dögunum. Mynd/Beyonce.com
Mæðgurnar Beyoncé og Blue Ivy voru sannkallaðar blómarósir í Gucci kjólum í París á dögunum. Beyoncé hefur verið að ferðast um Evrópu seinustu mánuði á tónleikaferðalagi. 

Dóttir hennar, Blue Ivy Carter, er greinilega með í för en söngkonan knáa hefur verið að birta myndir á heimasíðu sinni. 

Eins og komið hefur fram voru þær báðar í bláum blómakjólum frá Gucci. Þær eru báðar miklir aðdáendur ítalska tískuhússins en Blue hefur áður klæðst Gucci pilsum og skyrtum og Beyonce klæðist fötum frá merkinu bæði á tónleikaferðalaginu og í tónlistarmyndbandinu við Formation. 

Hoppandi stemmning í París hjá Gucci-mæðgum
Jay-Z tekur myndir af dressum konunar sinnar. Alvöru eiginmaður hér á ferð.
Huggulegt og rómantískt í París.





×