Lífið

Mæðgur fjalla um íslensk kjarnakvendi

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Mæðgurnar Ólöf Rún og Hjördís Hugrún fjalla um jákvæðar fyrirmyndir.
Mæðgurnar Ólöf Rún og Hjördís Hugrún fjalla um jákvæðar fyrirmyndir. MYND/EVA LIND
„Þetta eru fimmtíu áhugaverðar íslenskar konur í forvitnilegum störfum í vísinda- og tæknigeiranum. Það hefði örugglega verið hægt að skrifa bók um mörg hundruð konur en þessar urðu fyrir valinu,“ segir Ólöf Rún Skúladóttir, sem gefið hefur út bókina Tækifærin ásamt dóttur sinni Hjördísi Hugrúnu Sigurðardóttur.

Í bókinni eru viðtöl við fimmtíu íslenskar konur sem sinna áhugaverðum störfum víða um heim, meðal annars í San Francisco og Seattle, Reykjavík og Reyðarfirði, í Berlín og Stokkhólmi, Lúxemborg og á Ísafirði.

„Þó að í þessari bók séu viðtöl við konur sem hafa farið í langskólanám í vísinda- og tæknigreinum, þá á hún í rauninni erindi til mun víðari hóps. Þetta snýst í rauninni um hvernig við látum draumana rætast, hvernig við náum þangað sem við viljum. Leiðin getur oft verið svolítið hlykkjótt,“ segir Ólöf Rún og bætir við að í viðtölunum komi fram mikilvægi þess að vera fylgin/n sér.

„Að gefast ekki upp og stundum að spyrja aftur þótt einhver segi í fyrstu nei. Ef þú fylgir hlutunum eftir þá nærðu árangri, það þarf oft að vera útsjónarsamur og standa með sjálfum sér. Þetta á í rauninni bæði við um stráka og stelpur.“

Ólöf Rún segir það hafa gengið vel að fá viðmælendur til að samþykkja að koma í viðtöl en að því hafi ekki alltaf verið þannig háttað. „Margt hefur breyst á 20 til 25 árum. Þegar ég var að byrja í fréttamennsku þurfti oft að draga konur í viðtöl. Ekki var einungis því um að kenna að konur voru færri í framlínunni. Þær voru einnig mun hlédrægari. Það hefur breyst til betri vegar, það þarf að þora að taka af skarið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×