Mæðgur beittar ofbeldi og látnar borða hundamat Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 19. júní 2013 16:45
Tveir karlmenn og ein kona voru handtekin í gær í borginni Ashtown í Ohio-fylki Bandaríkjanna, grunuð um að hafa haldið andlega fatlaðri konu og barnungri dóttur hennar nauðugum í meira en ár og beitt þær margvíslegu ofbeldi. Að sögn Eric Smith hjá alríkislögreglu Bandaríkjanna voru mæðgurnar læstar inni í herbergi með skriðdýri, neyddar til að borða hundamat og hótað með vopnum og eiturslöngum. Konan fékk þó að fara út af heimilinu til þess að sinna ýmsum skyldum sem á hana voru lagðar, en hún sá meðal annars um öll innkaup heimilisins. Þremenningarnir eiga yfir höfði sér ákæru fyrir frelsissviptingu í ávinningsskyni, en þeir eru meðal annars sagðir hafa notað félagslegar bætur konunnar til eiturlyfjakaupa. Þá er þeim einnig gefið að sök að hafa veitt konunni áverka með grjóti í þeim tilgangi að koma höndum yfir lyfseðilsskyld verkjalyf. Hin handteknu eru á aldrinum 26 til 33 ára og segir móðir eins þeirra, Jordie Callahan, að ekkert sé til í ásökununum. Rannsóknarlögreglumenn segja Callahan, ásamt Jessicu Hunt, sem einnig var handtekin, hafa lokkað konuna til þess að flytja inn í íbúð þeirra. Þar bjó parið fyrir ásamt fjórum sonum Hunt og fjölda skriðdýra og hunda. Sá þriðji, Daniel Brown, er vinur parsins og talinn hafa tekið þátt í ofbeldinu.Handtekin fyrir að stela sælgæti Í október í fyrra var konan (brotaþoli), sem ekki hefur verið nafngreind, handtekin fyrir að stela sælgæti úr verslun. Lögreglumennirnir töldu að ekki væri allt með felldu og við yfirheyrslur sagði konan þeim frá ofbeldinu sem mæðgurnar höfðu orðið fyrir. Callahan sýndi lögreglumönnum myndskeið á síma sínum þar sem konan sást beita dóttur sína ofbeldi. Konan gaf þá skýringu að þremenningarnir hefðu neytt sig til að berja barnið og hótað í kjölfarið að sýna lögreglu myndbandið ef hún kæmi upp um þau. Dótturinni var komið fyrir á fósturheimili eftir handtöku móðurinnar og hófst rannsókn málsins í febrúar. David Marcelli, lögreglustjóri í Ashland, segir þremenningana hafa ítrekað komist í kast við lögin.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira