Innlent

Maðurinn sem rann niður hlíð í Skarðsdal alvarlega slasaður

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Fólkið var sótt af þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Fólkið var sótt af þyrlu Landhelgisgæslunnar. vísir/vilhelm
Karlmaður á fimmtugsaldri sem féll niður um hundrað metra niður hlíð í Skarðsdal í gær er alvarlega slasaður. Hann mun gangast undir aðgerð síðar í dag, samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Kona á sjötugsaldri, sem var með honum í för, er minna slösuð.

Fólkið var á göngu með hópi í Skarðsdal á Skarðsheiði í gær er þau runnu í hálku í um 600-700 metra hæð. Þrjátíu manna björgunarlið frá Akranesi, Borgarfirði og Borgarnesi var kallað út, en þar sem björgunarsveitir komust ekki á vettvang var þyrla Landhelgisgæslunnar fengin til að sækja fólkið.

Göngufólkinu sem var með þeim hefur verið boðin áfallahjálp.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×