Erlent

Maðurinn sem leiddi baráttuna gegn Ebólu sýktist sjálfur

Stefán Ó. Jónsson skrifar
VÍSIR/AFP
Læknirinn sem leiddi baráttuna gegn Ebólu-veirunni í Síerra Leóne hefur nú sjálfur smitast af sjúkdómnum.

Er þetta álitið mikið reiðarslag fyrir heilbrigðisyfirvöld í landinu en læknirinn, hinn 39 ára gamli Sheik Umar Khan, er í miklum metum og litið er á hann sem „þjóðarhetju“ fyrir vasklega framgöngu hans gegn sjúkdómnum sem dregið hefur rúmlega 200 manns til dauða í Síerra Leóne.

Engin lækning er til við Ebólu sem getur dregið níu af hverjum tíu til dauða sem smitast af veirunni en dánarhlutfall faraldursins sem nú geisar er um 60 prósent. Alls hafa 632 látið lífið í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne af völdum sjúkdómsins samkvæmt nýjustu tölum frá Alþjóða heilbrigðisstofnunni og eru heilbrigðiskerfi fjölda landa á vesturströnd Afríku í lamasessi vegna útbreiðslu veirunnar.  

Sheik Umar Khan
Khan, sem sagður er hafa hlúð að rúmlega 100 Ebólusjúkum, hefur verið fluttur á stofnun á vegum Lækna án landamæra og samkvæmt tilkynningu sem gefin var út í gær er hann á lífi og verið er að reyna að hjúkra honum.

Ebóla er bráðsmitandi og heilbrigðisstarfsfólk á í mikill hættu að næla sér í veiruna, þrátt fyrir að það klæðist hlífðarfatnaði. Þrjár hjúkrunarkonur sem unnu á sömu deild og Khan létust úr Ebólu á sunnudag.

Ebóla dregur nafn sitt af fljóti í Austur-Kongó þar sem veiran kom fyrst upp árið 1976. Þá dró hún 280 manns til dauða en alls hafa 1600 manns fallið af hennar völdum frá miðjum áttunda áratug síðustu aldar.   Í kjölfar smits herjar veiran á nær öll líffæri manneskjunnar og étur upp vefi líkamans.

Í kjölfar smits herjar veiran á nær öll líffæri manneskjunnar og étur upp vefi líkamans.


Tengdar fréttir

Ebóla breiðist hratt út með jarðarförum

Gunnhildur Árnadóttir, starfsmaður Lækna án landamæra, starfaði á vettvangi ebóluveiru í Gíneu. Ástandið á svæðinu er afar slæmt og erfitt að ná tökum á því. Siðir við útfarir eru taldir mesti útbreiðsluvaldur

Ebóla-faraldurinn stjórnlaus

Ebóla-faraldurinn sem geisar í þremur löndum í Vestur-Afríku er orðinn stjórnlaus, að sögn samtakanna Læknar án landamæra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×