Innlent

Maður stunginn með hníf í Austurstræti

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Árásin varð í Austurstræti aðfaranótt sunnudags.
Árásin varð í Austurstræti aðfaranótt sunnudags. Vísir/GVA
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að alvarlegri líkamsárás sem átti sér stað við Austurstræti 11, á milli veitingahússins Laundromat og Landsbankans, aðfararnótt sunnudagsins 28. september. Atvikið átti sér stað á milli klukkan fjögur og hálf fimm.

Maður var stunginn með hnífi og óskar lögreglan eftir því að þeir sem urðu vitni að samskiptum mannanna eða árásinni sjálfri hafi samband við lögreglu gegnum símann 444-1000, netfangið berglind.eyjolfsdottir@lrh.is eða með því að senda einkaskilaboð á Facebooksíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×