Innlent

Maður með tveggja áratuga sakaferil að baki dæmdur í fangelsi fyrir árás gegn unnustu sinni

Birgir Olgeirsson skrifar
Úr Héraðsdómi Reykjavíkur.
Úr Héraðsdómi Reykjavíkur. vísir/vilhelm
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir líkamsárás gagnvart unnustu sinni. Árásin átti sér stað 1. mars í fyrra en manninum var gefið að sök að hafa hrint konunni á milli veggja í íbúð hennar og sparkað ítrekað í hana þar sem hún lá á gólfi, tekið hana kverkataki, allt með þeim afleiðingum að hún hlaut glóðarauga á hægara auga og roða á augnslímhúð, sentímetra langt sár á hvirfli hægra megin, eymsli yfir höfuðkúpu og undir báðum kjálkabörðum, marblett ofan við hægri mjaðmakamb og um tveggja sentímetra skrapsár ofan við vinstra brjóst.

Í dómnum kemur fram að þegar lögregla mætti á heimili konunnar var hún illa til reika og með sýnilega áverka á höfði. Bar íbúð hennar merki þess að átök hefðu átt sér stað. Í fyrstu skýrslu hjá lögreglu greindi konan frá því að maðurinn væri unnusti hennar en ekki skráðu til heimilis hjá henni.

Dómurinn taldi að ekki yrði séð að lögregla hafi þá eða síðar bent konunni á að leysa mætti hana undan vitnaskyldu sem kveður á um í 2. málsgrein laga um meðferð sakamála. Var það því niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur að ekki væri unnt að byggja niðurstöðu á skýrslugjöf konunnar hjá lögreglu.

Dómurinn taldi hins vegar yfir allan vafa hafi að maðurinn hafi veist að konunni með þeim hætti sem í ákæru greinir. Læknir sannreyndi að konan var aum undir kjálkabörðum, sem studdi framburð hennar að maðurinn hafi tekið hana kverkataki.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavík, sem lesa má hér, kemur fram að maðurinn á að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 1994. Hann á að baki ofbeldisbrot og var árið 2007 dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar. Var hann meðal annars sakfelldur fyrir að stinga brotaþola með hnífi í þeim dómi. Árið 2010 var hann dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir ofbeldisbrot.

Var hann því dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir líkamsárásina gegn unnustu sinni og taldi dómurinn ekki unnt að að skilorðsbinda refsingu mannsins vegna fyrri brota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×