Erlent

Maður lést í skotárás í miðborg Kaupmannahafnar

Atli Ísleifsson skrifar
Árásin var gerð í dómshúsi í grennd við Ráðhúsinu í Kaupmannahöfn í morgun.
Árásin var gerð í dómshúsi í grennd við Ráðhúsinu í Kaupmannahöfn í morgun.
Einn  maður lést og annar særðist lífshættulega í skotárás í dómshúsinu við Hestemøllerstræde í Kaupmannahöfn í morgun.

Að sögn danska ríkisútvarpsins átti árásin sér stað inni í dómshúsinu, sem stendur nálægt Ráðhústorginu, þar sem maður skaut mennina með afsagaðri haglabyssu.

Maðurinn skaut fimm eða sex skotum og flúði svo dómshúsið, en var handtekinn skömmu síðar fyrir utan húsið.

Réttarhöld stóðu yfir í dómshúsinu þegar skotárásin átti sér stað, en í frétt BBC segir að fjölskylduerjur hafi leitt til árásarinnar.

Lögregla hefur afgirt stórt svæði í kringum dómshúsið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×